Seiðkonur, grasaguddur og allt það lið

Nafn:

Seiðkona

Tenglar

14.05.2012 21:22

Heild ráðgjafa og sálgæslusetur



Fyrirtækið:

Heild er ráðgjafa og sálgæslusetur stofsett af Guðrúnu Kristínu Þórsdóttur og Kristínu Sigríði Garðarsdóttur. Þær eru báðar djáknar með meiru og þær veita sálgæslu og ráðgjöf, einkum konum.

Kveikjan að starfsseminni liggur í reynslu þeirra  af sálgæslu, ráðgjöf, leiðsögn og eftirfylgd sem eru að þeirra mati er mikilvæg þegar einstaklingar öðlast styrk og nær betri tökum á lífi sínu.

Þær líta svo á að líf hvers einstaklings hafi mikilvæga sögu að segja og byggjum vinnu sína á þeim grunni.

Hugmyndafræðin:

Hugmyndafræði Heildar byggir á sálgæslufræðunum, aðferðafræði tólf sporanna og fræðikenningum heimspeki-, sálar- og geðlæknisfræða og af því leiðir að þjónusta Heildar byggir á þessum fræðum ásamt þekkingu og innsæi.

Heild stendur fyrir ákveðinni sýn á manneskjuna sem anda, sál og líkama, en jafnframt hluta af stærri heild, svo sem samfélaginu og fjölskyldunni.

Nálgun Heildar byggir á því að leiðbeina einstaklingum inn á lífsvettvang sem veitir honum sem mesta farsæld í lífinu og megin markmiðið er að styðja fólk við að leysa vandamál sín eða verkefni á eigin spýtur og benda á leiðir til lausna og sátta.

Aðferðarfræði Heildar byggir m.a. á 12 reynslusporum AA samtakanna, 16 sporum Charlotte Kasl, sálfræðings og fíkniráðgjafa og fræðum Victor E. Frankl læknis, sálkönnuðar og heimspekings.

Námskeið:

Námskeiðið er byggt með aðferðafræði tólf sporanna að leiðarljósi, auk kenninga úr heimspeki-, sálar- og geðlæknisfræðum og jafnframt eru kynntar aðferðir íhugnanafræðanna.

Áhersla er á að veita einstaklingum verkfæri sem hjálpa þeim til að eignast von og kraft til að finna tilgang, gleði og sátt í lífinu. Námskeiðin kallast: ,,Leiðarsteinar til farsælla og betra lífs" og eru byggð þannig upp, að þau hvetja einstaklinga til að vinna úr erfiðum tilfinningum, áföllum og vanlíðan.

Námskeiðin standa yfir í fjögur skipti, einu sinni í viku og er einkaviðtal innifalið. Æskileg hópastærð er 7 - 9 manns.

Námskeiðið Leiðarsteinar er auglýst á heimasíðunni http://heild.is og Facebooksíðu Heildar http://www.facebook.com/heild.is auk þess sem þau kynna sig sjálf með þátttakendum, sem bera þeim vitni. Fyrsta námskeiðið hófst í janúar 2012 og hafa verið samfellt í gangi síðan.
Verð námskeiðs ásamt einu viðtali er kr. 15.000

Venjulegt viðtal kostar kr. 5.500

Konurnar bakvið fyrirtækið:

Guðrún Kristín Þórsdóttir er fædd 1950, gift, þriggja barna móðir og á tvö barnabörn.Guðrún er sjúkraliði og með B.A. próf í sálarfræði og diploma í hugrænni atferlisfræðnálgun. Hún lauk prófi í djáknafræðum árið 1998 og vígðist til djákna í byrjun árs 1999. Síðan þá hefur hún starfað við djáknaþjónustu.

Guðrún er löggiltur leiðsögumaður enda helsta áhugamál hennar að ferðast hvort sem það er á hestbaki, gangandi eða keyrandi

Kristín Sigríður Garðarsdóttir er fædd 1956, þriggja barna móðir og á tvö barnabörn.Kristín er vímuefnaráðgjafi og hefur starfað sem ráðgjafi og meðferðaraðili í 5 ár. Hún lauk námi í guðfræði og vígðist sem djákni 2007 og hefur unnið að verkefnum tengdum sálgæslu.

Kristín hefur lokið námi sem dáleiðari (clinical hypnotherapist), Dip.Ch.,FaFDT hjá John Sellars (The hypnosis centre International School of Clinical hypnosis) sjá einnig: www.daleidsla.is.

Helstu áhugamál Kristínar eru fjölskyldan, útivist, hestamenska, ljósmyndun og ýmis listsköpun.

Staðsetning og upplýsingar:

Laugavegur 69 , 4 hæð (Kjörgarður)
heild@heild.is
http://heild.is

12.05.2012 18:33

Jógastúdíóið.



Mig langar að benda á frábært jógastúdío staðsett að Seljavegi 2. Eigendur eru jógakennarnir Drífa Atladóttir og Ágústa Kolbrún Jónsdóttir. Báðar lærðu þær hjá Guðjóni Bergmanni og eru frábærir jógakennarar. Þetta er jógastúdíó sem enginn áhugamanneskja um jóga ætti að láta framhjá sér fara. Stúdíó er í Héðinshúsinu þar sem Kastalinn var til húsa og þú finnur jógaandann um leið og inn er komið.

http://jogastudio.org/

11.05.2012 22:39

Draumar og gyðjur



Ég benti á Valgerði H. Bjarnadóttur í gær og nú langar mér að benda fólki á tvö námskeið sem hún er með í næstu viku, annað um drauma og hitt um gyðjusögur.

Draumar - auður svefnsins. Mánudag 14.maí kl.18:30-21:30
Okkur dreymir öll, í hvert sinn sem við sofum. Námskeiðið er kynning á hlutverki og eðli drauma, kynntar nokkrar draumkenningar. Þátttakendur kynnast einföldum aðferðum sem geta nýst vel til að muna, rifja upp og vinna með drauma og fá örlitla þjálfun í vinnu með eigin drauma og annarra til að öðlast aukna sjálfsþekkingu, lífsfyllingu og þroska.


Og tvö gyðjunámskeið

Örlagagyðjna: Urður, Hel, Ershehkigal og Hecate
- Þriðjudag 15.mai kl. 19:00-22:00
Gyðjan í samtímanum - hvaða erindi á hún við okkur? - Fimmtudagur 22.maí kl. 19:00-22:00

Í árþúsundir hafði almættið mynd konu eða goðkynja veru sem á stundum var ímynd kvenlegrar fegurðar, stundum blendingur konu og dýrs, en hún gat líka verið stjarna, tunglið, jörðin eða sjálft svartholið. Líklegt er að gyðjan hafi í hugum fólksins búið yfir öllum þeim eiginleikum sem lífið spannar, skapandi og eyðandi kröftum, blíðu og hörku.  Í þessari örnámskeiðaröð um Gyðjuna leiðir Valgerður okkur inn í heim sem er óháður tíma og rúmi,  í gegnum fróðleik í máli og myndum, umræður, verkefni og hugleiðingar.

Skráning á vanadis@vanadis.is
Námskeiðin eru haldin að Hannesarholti Grundarstíg 10 Reykjavík
 http://www.vanadis.is/


10.05.2012 21:37

Vanadís, völva og valkyrja-helgar ímyndir úr minni íslenskar konu.



Mig langar að fjalla um áhugaverðar konur og karla og sú fyrsta sem ég langar að benda fólki á er Valgerður H. Bjarnadóttir sem á og rekur fyrirtækið Vanadís. Hún er með MA próf í menningarsögu og femíniskri trúarheimspeki. Hún hefur stúderað goðsagnir út frá gyðjunni og býr yfir miklum fróðleik sem hún deilir til fólks í gengum námskeið sín. Þetta eru afar spennandi og áhugaverð námskeið sem ég hvet sem flesta til að kynna sér.Eftirfarandi upplýsingar um Valgerði eru teknar af síðu hennar http://www.vanadis.is

Sérsvið

Sjálfsstyrking, samskipti og sjálfsþekking; goðsagnir, menningarsaga og femínísk trúarheimspeki; kvenfrelsi og jafnrétti; draumar og draumavinna; sjamanismi

Menntun

Félagsráðgjafi frá Noregi 1980, BA í heildrænum fræðum með áherslu á draumafræði frá CIIS í San Fransiskó 1996, MA í femínískri trúarheimspeki og menningarsögu með áherslu á norræna goðafræði og gyðjutrú frá CIIS 2001.

Styttra nám og námskeið í sálarfræði, leikhúsfræðum, sjamanisma, draumafræðum, tungumálum (enska, norræn tungumál, franska), kennslufræðum, fjölskylduráðgjöf, Jungisma o.fl.

Starfsreynsla

Ráðgjöf einstaklinga og hópa, verkefnisstjórn og stjórnun opinberra stofnana og deilda, rekstur eigin fyrirtækis, kennsla unglinga og fullorðinna, stjórnmál, leiklist, alþjóðasamskipti, félagsstarf, starf með útlendingum á Íslandi, móður- og ömmuhlutverk

Stutt æviágrip

Ég fæddist í þennan heim 24. janúar 1954 á heimili ömmu minnar og afa við Hríseyjargötu á Akureyri. Ólst upp á Akureyri og hef búið þar góðan hluta ævi minnar, með nokkrum hléum þó. Sem barn bjó ég um tíma í Englandi. Eftir stúdentspróf stundaði ég nám í sálarfræði við HÍ í eitt ár og brá mér svo til Frakklands þar sem ég gluggaði í frönsku og leikhúsfræði meðfram ýmsum störfum. Þaðan hélt ég til Noregs. Ég útskrifaðist 1980 sem félagsráðgjafi frá Sosialhögskolen Bærum.

1996 lauk ég BA gráðu í heildrænum fræðum (Integral Studies) frá California Institute of Integral Studies í San Francisco, með áherslu á draumafræði. Síðan stundaði ég MA-nám í femínískri trúarheimspeki (Women's Spirituality) við sama skóla. Þar lagði ég áherslu á að finna tengsl úr íslenska sagnaarfinum við kvenímyndir og trúarminni frá öðrum menningarheimum. Ég lauk náminu 2001 með ritgerðinni Vanadís, Völva, Valkyrja - Images of the Divine from the Memory of an Islandic Woman. Ritgerðin fjallar um leitina að þráðum fornevrópskrar gyðjumenningar, sem hafa lifað og lifa enn í íslenskri menningu.

Um tíma stundaði ég nám í nútímasjamanisma hjá Lynn V. Andrews, Carlos Castaneda og fleirum í Ameríkunni og bætti síðar við þá þekkingu mína hjá Caitlín Matthews í Englandi, en Caitlín hefur í samstarfi við eiginmann sinn John Matthews sérhæft sig í keltneskum fræðum, þ.á.m. sjamanisma. 

Ég starfaði á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri að loknu náminu í félagsráðgjöf. Stýrði svo íslenska hluta norræna jafnréttisverkefnisins Brjótum múrana frá 1985-1990. Kenndi eitt ár við Gagnfræðaskóla Akureyrar og var svo fyrsti jafnréttis- og fræðslufulltrúi Akureyrar til 1995. Þá brá ég mér til San Fransiskó í nám og bjó þar í rúm tvö ár. Eftir námið í San Fransiskó stýrði ég Menntasmiðjunni um skeið og síðan Jafnréttisstofu til ársins 2003.  

Ég hef um áratuga skeið starfað að málefnum kvenna og jafnrétti kynjanna á ýmsum vettvangi. Í því sambandi hef ég lagt áherslu á að þróa óhefðbundnar aðferðir í fullorðinsfræðslu, með sérstakri áherslu á námsnálgun kvenna og sjálfsstyrkingu. Í samvinnu við vinkonu mína Karólínu Stefánsdóttur var námskeiðið Lífsvefurinn spunnið, ofið og haldið fyrir konur um allt land og víðar. Menntasmiðju kvenna stofnaði ég í starfi mínu sem jafnréttis- og fræðslufulltrúi Akureyrar 1994 og hef þróað áfram ásamt fleiri góðum konum. Ég hef verið virk í kvennahreyfingunni og stjórnmálum, tók m.a. þátt í stofnun Jafnréttishreyfingarinnar á Akureyri, Kvennaframboðsins á Akureyri og Kvennalistans og hef tvívegis setið í bæjarstjórn Akureyrar, fyrst fyrir Kvennaframboðið og síðar fyrir Vinstrihreyfinguna grænt framboð.

Síðustu ár hef ég verið með eigin rekstur undir heitinu Vanadís. Þú getur fræðst nánar um  verkefnið Vanadís - rætur okkar, draumar og auður, á þessari heimasíðu. 2006 tók ég einnig þátt í að koma á fót tveimur félögum, sem eru nú ríkur hluti lífs míns, Mardöll - félag um menningararf kvenna og Félag sjálfstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi eða AkureyrarAkademían. Þriðja félagið sem ég starfa fyrir er Félag um menntasmiðjur.

Síðustu ár hef ég verið með aðstöðu í húsnæði Akademíunnar, gamla Húsmæðraskólanum við Þórunnarstræti. Þar hef ég skrifað, veitt ráðgjöf, haldið námskeið o.fl. Um þessar mundir (haustið 2011) er ég að flytja mig um set til höfuðborgarinnar, þar sem ég þróa reksturinn áfram, með námskeiðum, fyrirlestrum, ráðgjöf og hópavinnu.

Tekið af síðu Valgerðar www.vanadis.is 

20.04.2012 22:41

Ilmandi herbergissprey fyrir heimilið

Frískandi sprey

  • 6 dropar bergamot ilmkjarnaolía 
  • 1 dropar eucalyptus ilmkjarnaolía 
  • 2 dropar lemon ilmkjarnaolía 

Sprey þar sem eru gæludýr

  • 6 dropar cedarwood ilmkjarnaolía
  • 3 dropar tea tree ilmkjarnaolía 

Ilmandi kryddsprey

  • 6 dropar cinnamon ilmkjarnaolía 
  • 3 dropar clove ilmkjarnaolía

Appelsínuilmur

  • 5 dropar orange ilmkjarnaolía 
  • 2 dropar cinnamon ilmkjarnaolía

Upplífgandi sprey

  • 4 dropar chamomile ilmkjarnaolía
  • 3 dropar orange ilmkjarnaolía
  • 2 dropar ylang ylang ilmkjarnaolía

Róandi sprey/stresslosandi sprey

  • 4 dropar lavender ilmkjarnaolía
  • 3 dropar rose ilmkjarnaolía
  • 2 dropar clary sage ilmkjarnaolía

Róandi sprey - gott fyrir svefn

  • 4 dropar lavender ilmkjarnaolía
  • 3 dropar chamomile ilmkjarnaolía

Einhverri af ofantalinni ilmblöndu blandað út í 250 ml af vatni í spreybrúsa. Hrist vel saman og notað eftir þörfum.

19.04.2012 15:08

Gleðilegt sumar


                 Gleðilegt sumar kæru vinir

17.04.2012 23:43

Gömlu mánuðirnir



Harpa
var fyrsti mánuður sumars og líklega ársins. Harpa hófst með sumardeginum fyrsta. Nafnið Harpa er ekki mjög gamalt, e.t.v. frá 17. öld, og uppruni þess óljós en tengist kannski vorhörkum, herpingi. Í Snorra-Eddu er mánuðurinn kallaður gaukmánuður og sáðtíð. Í rómantík 19. aldar fékk Hörpu-nafnið á sig rómantískan blæ og jafnvel talið nafn dóttur Þorra og Góu sem þá var líka farið að tala um sem hjón.

Sumardagurinn fyrsti er einhver elsti hátíðisdagur þjóðarinnar . Hann er nefndur í Íslendingasögum og elstu lögbókum landsins. Sumargjafir eru þekktar allt frá 16. öld og þær því miklu eldri en jólagjafir.

Krossmessa á vori er 3. maí. Hún var haldin til minningar um að talið var að þá hefði kross Krists fundist árið 320. Eitthvað mun það þó vera málum blandið. Engu að síður naut dagurinn mikillar virðingar innan kirkjunnar. (Sjá nánar í bókinni Saga daganna, bls. 53-61).

Skerpla var annar mánuður sumars og hófst á laugardegi í 5. viku sumars (19.-25. maí). Nafnskýring er óljós en hugsanlega er vísað til þess að á þessum árstíma er gróður skammt á veg kominn. Í Snorra-Eddu er þessi mánuður kallaður eggtíð og stekktíð .

Sólmánuður var þriðji mánuður sumars og hófst mánudaginn í 9. viku sumars (18.-24. júní). Heitið sólmánuður skýrir sig sjálft. Í Snorra-Eddu er þessi mánuður einnig nefndur selmánuður .

Heyannir var fjórði mánuður sumars og hófst með miðsumri (23.-29. júlí). Heitið heyannir vísar til mikils annatíma í sveitum. Mánuðurinn sjálfur, eða nokkur hluti hans, mun einnig hafa borið nafnið miðsumar .

Tvímánuður var fimmti mánuður sumars og hófst þriðjudaginn í 18. viku sumars (22.-28. ágúst). Nafnið vísar hugsanlega til þess að við upphaf hans voru tveir mánuðir eftir af sumri. Í Snorra-Eddu er þessi mánuður líka nefndur kornskurðarmánuður .

Haustmánuður var síðasti mánuður sumars. Haustmánuður hófst (oftast) á fimmtudegi í 23. viku sumars (21.-27. september).

Gormánuður var fyrsti mánuður vetrar. Gormánuður hófst fyrsta vetrardag . Nafnið mun vísa til sláturtíðar en gor þýðir hálfmelt fæða í innyflum dýra, einkum hjá grasbítum.

Fyrsti vetrardagur var á laugardegi sem nú fellur á milli 21. og 27. október. Sumardagurinn fyrsti var alltaf á fimmtudegi svo að sumarvikum lauk á miðvikudegi. Dagarnir frá síðustu viku sumars og fram að fyrsta vetrardegi, þ.e. fimmtudagurinn og föstudagurinn, voru kallaðir veturnætur. Veturnætur og fyrsti vetrardagur voru samkomu- og veislutími til forna hjá norrænum mönnum enda heppilegur sem slíkur því að þá var til gnótt matar og drykkjar eftir uppskeru haustsins og sláturtíð. Í fornsögum er víða minnst á veislur og brúðkaup á þessum tíma. Kirkjan um hafa amast við þessum hátíðum og því lögðust þær af eða færðust yfir á allraheilagramessu , 1. nóvember, sem var hátíðisdagur kirkjunnar.

Ýlir var annar mánuður vetrar. Hann hófst með mánudegi í 5. viku vetrar (20.-26. nóvember). Nafnið trúlega skylt orðinu jól. Í Snorra-Eddu er þessi mánuður kallaður frermánuður .

Mörsugur var þriðji mánuður vetrar. Mörsugur hefst með miðvikudegi í 9. viku vetrar (20.-26. desember). Hvað nafnið mörsugur þýðir er ekki vitað. Þessi mánuður var einnig kallaður jólmánuður . Í Snorra-Eddu er hann kallaður hrútmánuður, enda var þá hrútum hleypt til ánna .

Þorri var fjórði mánuður vetrar, miðsvetrarmánuður. Þorri hefst með föstudegi í 13. viku vetrar (19-25. janúar). Ekki er nákvæmlega vitað hvað nafnið merkir. Oftast er það þó tengt sögninni að þverra eða að minnka eða talið skylt lýsingarorðinu þurr. Einnig hefur verið nefnt að það gæti verið gælunafn Ása-Þórs. Þorri var persónugerður sem vetrarvættur á miðöldum. Fyrsti dagur þorra var tileinkaður húsbændum og síðar var farið að kalla hann bóndadag . Líklega eru þorrablót ævagömul hefð sem hefur verið endurvakin á síðustu áratugum.

Öskudagur. Af þeim bræðrum bolludegi, sprengidegi og öskudegi er sá síðastnefndi langelstur. Heiti hans er þekkt allt frá 14. öld en flengingar og bolluát munu ekki hafa borist til landsins fyrr en með erlendum bökurum seint á 19. öld. Á öskudag reyndu konur að láta karla bera ösku en karlar að fá konur til að bera steina. Til að svo mætti verða saumaði fólk litla poka sem konur setti ösku í en karlar steina og reyndu svo að hengja pokana á hitt kynið svo að lítið bæri á. Þetta er mjög gamall siður á Íslandi en þekkist ekki í öðrum löndum.

Góa (áður gói ) var fimmti mánuður vetrar. Góa hófst með sunnudegi í 18. viku vetrar (18.-24. febrúar). Ekki er nákvæmlega vitað um uppruna þessa heitis. Góa var líka vetrarvættur sem skyldi fagna, rétt eins og þorra, og var fagnaðurinn tileinkaður húsfreyjum. Í fornum sögnum var góa talin dóttir þorra en síðar talið að hún væri eiginkona hans.

Einmánuður var síðasti mánuður vetrar. Einmánuður hófst á þriðjudegi í 22. viku vetrar (20.-26. mars). Ekki er vitað hvað heitið einmánuður merkir en kannski vísar nafnið til þess að mánuðurinn er síðastur vetrarmánaða, aðeins einn mánuður eftir af vetri.

11.04.2012 11:33

Centering Prayer - Kristin íhugun



Five steps to spiritual growth: practicing centering prayer

Centering prayer is a kind of contemplative prayer that has been explored since the beginnings of the church. Its purpose is to help us reach a deeper level of communion with God, and also to let God speak into our hearts. Through centering prayer we can find rest for our souls, not only our bodies, and let God to develop us into new people with new hearts.

Centering prayer concentrates on listening for God's voice, and not just how we're probably accustomed to praying, which frequently means talking to God. Prayer is seen as a way to a closer, more intimate relationship with God, going deeper than simply conversion.

Centering prayer is not just an event. It is a long-term practice that must be disciplined. You can't get the most out of it if you only try it once or twice. In fact, before you decide if it's working for you or not, you should probably practice it for at least a month.

Step 1: wear loose clothing and find a location where you can be relaxed

To prepare yourself for centering prayer, you need to be able to relax and focus. Find or create a space where you can sit in silence comfortably for at least 15 minutes. When you get more comfortable with it you can go longer, but 15 minutes is a good goal for beginners.

Perhaps the best thing you can do is wear comfortable clothing. I prefer either sweat- or knit pants that don't bunch up when I sit. I also have a firm pillow to sit on. I prefer to spend my prayer time sitting on the floor, though sitting in a chair is acceptable.

For some people, especially people with poor circulation or other physical problems, it may be impossible to sit comfortably on the floor for 15 minutes. That's ok! The important thing is to be able to sit in such a way that you can be relaxed and comfortable, but also alert.

Your prayer space should be quiet, with a minimum of distractions. This can be the most difficult part of contemplation at times. I have two cats and live in a noisy neighborhood, so I am well aware of how hard it can be to find a quiet spot. If you do the best you can, you will eventually learn to focus in the midst of distraction. It may also help to light a scented candle or something else to create the environment.

Step 2: sit comfortably on a chair or the floor, close your eyes, and breathe slowly but naturally

If you choose to sit in a chair, keep your feet flat on the floor. I like to sit on the floor with my legs crossed. You can also try a half-lotus or lotus if you like. However you sit, make sure your back is straight but not stiff, and keep your hips and shoulders aligned.

Sometimes people get tripped up over their breathing. Don't think about it too much, just let it come naturally. As you become more focused your breathing will naturally get slower and deeper. The exact way you breathe is completely your decision.

Step 3: pick out a focus word or phrase

Pick a short phrase or word to repeat to yourself. It could be something from scripture, a favorite prayer, or something else that reminds you of God's closeness. As you repeat it, your breathing will continue to deepen.

Many choose to repeat the word Abba, but the specific word or phrase doesn't matter as long as it helps you center yourself and recognize the presence of God about, around, and within you.

Eventually you will no longer need to consciously speak the word in your mind; you will have internalized it. At that point, you can invite God to search your heart and begin the work of healing. When you find yourself distracted, take up your word again to find your bearings and return to your internal place of peace.

Step 4: repeat this for 15 minutes or more

Don't get upset if you have trouble with focus. Eventually it will happen. Don't struggle against your thoughts or try to fight them. Continue breathing and saying your focus phrase. If thoughts enter your mind, allow them to come and go without a fight.

If you have a bad thought, or something makes you frustrated, remember: God is with you! Perhaps God is revealing something through your own thoughts. Just let them be and don't fight against them. Keep asking God to be present to the heart of your being.

Step 5: get ready to go back into the world

When 15 minutes or however long you decided is up, open your eyes and become aware of the world around you. Look around the room, observing what's happening. Be aware of the presence of God with you, and know that it is always present wherever you are.

Allow your thoughts to return without struggle, and get ready to do whatever you are doing next. You may want to close with another prayer, such as the Lord's Prayer or a personal favorite.

Personal devotions and centering prayer

There are several kinds of contemplative prayer. Centering prayer is only one kind, but it is both one of the simplest for beginners and most profound. You will experience God in ways you may not have thought possible. Centering prayer can be practiced as its own meditation, or as the introduction to another, such as the Ignatian Examen.

I hope you will find the practice of centering prayer a liberating and spiritually enriching experience.

http://www.squidoo.com/how-to-practice-centering-prayer

07.04.2012 18:41

Centering praying - Kristin íhugun.



Mig langar að deila með ykkur áhugaverðum atburðum í  næstu viku, fyrir þá sem hafa áhuga á kristinni íhugunaraðferð gefst frábært tækifæri til að kynnast henni dagana 10.-15.apríl. Í Skálholti verða kyrrðardagar undir nafninu Biblíuleg íhugun og í Reykjavík verða tveir fyrirlestra annar í Neskirkju 10.apríl kl. 19:30 og hinn í Háskóla Íslands kl. 13:30-15:30

Kristin íhugunarbæn kynnt
Faðir Carl Arico mun kynna hina kristnu íhugunarbænaaðferð Centering Prayer og biblíulega íhugun, Lectio Divina, í Reykjavík og Skálholti dagana 10.-15. apríl.  Hann er einn stofnenda bænahreyfingarinnar Contemplative Outreach

Fr. Carl Arico er þekktur fyrir að vera greinargóður og glettinn fræðari. Frá 1960 hefur hann þjónað sem sóknarprestur og menntaskólakennari, sinnt hjóna- og fjölskylduráðgjöf og ritað um lifandi og virka prestsþjónustu í samtíðinni. Frá 1987 hefur hann verið einn helsti frumkvöðull og stjórnandi hreyfingarinnar Contemplative Outreach. Á liðnum árum hafa þau fr. Thomas Keating, fr. William Meninger og Pat Johnson komið hingað og  m.a. leitt kyrrðardaga í Skálholti en þau eru ásamt fr. Carl Arico stofnendur

Þriðjudaginn 10. apríl kl. 19:30 í Neskirkju
faðir Carl Arico kynnir Centering Prayer í Neskirkju. Hægt að kaupa máltíð frá 18:30

Miðvikudag 11.apríl í Háskóla Íslands
Fyrirlestur í Háskóla Íslands um þrá í samtíð eftir andlegri næringu (Hunger for spirituality in the modern world). Þar fjallar fr. Arico um staðhæfingu fr. Tomasar Keatings "að þráin eftir hamingju og djúpri lífsfyllingu sé glöggt tákn og vitnisburður um  veru Guðs og nánd".

http://kirkjan.is/2012/03/kristin-ihugunarbaenaadferd-kynnt/

Kyrrðardagar í Skálholti - Biblíuleg íhugun 12.-15. apríl 2012

Þessa daga verður boðið upp á leiðsögn í hinni kristnu íhugunarbæn Centering Prayer með sérstakri áherslu á biblíulega íhugun (Lectio divina). Fr. Carl Arico frá Bandaríkjunum mun leiða okkur inn í þessa fornu hefð sem var hluti af trúrækni kristins fólks allar götur frá eyðimerkurfeðrum og -mæðrum á fyrstu öldum kristni. Fr. Carl Arico er einn af stofnendum Contemplative Outreach Ltd. og nánasti samstarfsmaður Thomasar Keatings (sjá heimasíðu samtakanna: www.contemplativeoutreach.org). Hann er höfundur bókanna "Living Our Priesthood Today" og "Taste of Silence".

http://www.skalholt.is/2011/08/20/bibliuleg-ihugun/

05.04.2012 14:09

Gleðilega páska



Gleðilega páska kæru netverjar.

19.03.2012 22:14

alice´s adventure yoga - fallegt jógablogg



Þetta blogg rakst ég á netinu. Fallegt blogg um jóga.
http://www.alicenoyes.com/yoga/blog/

19.03.2012 22:05

Ótitlað



Vorið er ekki alveg komið ennþá en þangað til má ylja sér við fallegar myndir og jógað sem hægt verður að stunda út í guðsgrænni náttúrunni.

05.03.2012 22:03

Heródusarkjúklingur



Heródusarkjúklingur að hætti Sigurðar Árna

Ég ætla að setja þessa uppskrift inn aftur því ég tók eftir athugasemd við henni þegar ég var að fara yfir síðna mína í dag. Kristján Jónsson setti inn mjög góða og athyglisverð athugasemd.

"Þegar ég sá þessa uppskrift fyrst fylgdi sögunni að hún væri arabísk frá 13. öld. Á mínu heimili er þetta oft (amk. stundum) eldað. Ég set mun meira af steinselju en stendur í uppskriftinni (2-3 búnt er allt í lagi) og það má líka alveg auka selleríið (heil búnt). Svo er mjög gott að bera réttinn fram með brauði (t.d grófu heimabökuðu eða ristuðu). Þá smyr maður brauðið með "gumsinu" úr pottinum. Svo notum við rauðvín ef koníakið er ekki til (enda var ekki búið að finna það upp á 13 öld er það nokkuð?). Ekki heldur gleyma að taka lokið af pottinum þegar gestirnir eru sestir með tilheyrandi viðhöfn."

Hráefni:

  • ½ bolli ólífuolía
  • 4 stilkar sellerí
  • 2 msk. estragon
  • 2 msk. fínt klippt steinselja
  • 1 góður kjúklingur hlutaður í sundur
  • salt og nýmalaður pipar
  • 2 niðurrifnar múskathnetur
  • 40 afhýddir hvítlauksgeirar (ath. ekki ásláttarvilla)
  • koníakssletta - má sleppa í undantekningartilvikum!
  • ¾ bolli hveiti
  • vatn
Aðferð:
Hitið olíuna, setjið sellerí, steinselju og estragon út í hetia olíuna og látið mýkjast í 2-3 mínútur. Passið að brenna ekki. Stráið vel af salti, pipar og múskati á kjúklingabitana og steikið upp úr olíunni. Setjið allt saman í sldfast mót (með loki) hvítlauksgeirarnir og koníakið sett út í. Lokið, sem verður að falla vel að er sett á. Setjið hveitilím í falsið til að loka almennilega og lokið sé lok! (Hveitlím: Hveiti og vatni hrært í þykkan jafning).

Bakið réttinn í ofni við 190 gráður í eina og hálfa klukkustund. Berið fram með nýbökuðu brauði, sem er smurt með hvítlauknum og grænmetinu sem fór með kjúklingnum í ofninn og er nú orðið að bragðmiklu ljúffengu mauki.

Munið að nota vel af salti, pipar og nýrifnu múskati, annars verður rétturinn bragðlaus. Þegar búið er að setja réttin í ofninn er meðmælanlegt að fara í góðan göngutúr og koma svo inn þegar hann er að vera tilbúinn. Þá hefur himneskur ilmur fyllt húsakynnin. Reiðið fram bulgur (eða hrísgrjón eða kúskús) til að vinna vel upp hina miklu sósu sem myndast við steikinguna.

05.03.2012 19:51

Ilmandi detox baðsalt



Baðsalt

Innihald:
  • 175 g dauðahafs salt
  • 175 g epsom salt
  • 150 sjávarsalt
  • 60 g matarsódi
  • 30 dropar mintu ilmkjarnaolía
  • 30 dropar júniper ilmkjarnaolía
  • 20 dropar sítrónu ilmkjarnaolía
Aðferð
  • Söltunum og matarsóda hrært saman.
  • Ilmkjarnaolíun blandað út í (má breyta olíunum eftir smekk=
  • Sett í 500 ml krukku.
  • 1-2 bollar settir út í baðvatnið.

18.02.2012 18:35

Ilmandi eyrnaolíur



Eyrnaolía (nuddolía)

Innihald:
  • 3 dropar lavender ilmkjarnaolía
  • 3 dropar tea tree ilmkjarnaolía
  • 6 dropar chamomile ilmkjarnaolía
  • 30 ml grunnolía
Aðferð:
  • Ilmkjarnaolíunum blandað saman
  • Sett út í grunnolíuna
  • Nuddað kringum eyrað og niður hálsinn
  • Má setja 1 dropa í bómull og setja í eyrað.
Flettingar í dag: 136
Gestir í dag: 17
Flettingar í gær: 705
Gestir í gær: 155
Samtals flettingar: 528062
Samtals gestir: 132253
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 05:15:03

Eldra efni