03.09.2011 16:22
Fjallagrasate

Fjallagrasate
Innihald:
- Fjallagrös
- Vatn
- Hunang
- Vanilla (má sleppa)
- Sjóðandi vatni helt yfir fjallagrösin.
- Slökkvið undir og látið standa í 15-20 mínútur.
- Bragðbætið eftir smekk með hunangi og vanillu.
03.09.2011 16:16
Blóðbergshunang

Blóðbergshunang
Innihald
- 1 bolli hunang
- 1/4 bolli þurrkað blóðberg eða
- 1/2 bolli fersk blóðberg
- Blóðbergi og hunangi blandað saman og hitað við vægan hita í 20 mínútur.
- Tekið af hellunni og látið kólna.
- Takið blóðbergið frá og hunangið sett á krukku.
- 1 tsk sinnum 3 á dag út í te eða notað eingöngu.
03.09.2011 15:56
Blóðbergssíróp

Blóðbergssíróp
Innihald:
- 30 gr kamilla
- 20 gr blóðberg
- 10 gr salvía
- 1 hvítlaukur
- 1 lítri vatn
- 454 g hunang
Aðferð:
- Soðnu vatni helt yfir jurtirnar og látið krauma í 15 mínútur.
- Síið jurtirnar frá og sjóðið vökvann niður, þar til hann hefur minnkað í 200 ml.
- Bætið hunanginu úti og hrærið vel saman.
- Má taka inn eitt og sér eða bæta því út í te.
Skammtar
- 1 tsk 4-6 sinnum á dag fyrir börn
- 2 tsk 4-6 sinnum á dag fyrir fullorðna
18.06.2011 21:33
Frískandi sprey fyrir heimilið

Frískandi sprey
Innihald:
- 2 dropar citronella ilmkjarnaolía
- 6 dropar lemon ilmkjarnaolía.
- 8 dropar balsam fir ilmkjarnaolía.
- 8 dropar lemongrass ilmkjarnaolía.
- 120 ml vatn.
- Ilmkjarnaolíunum blandað saman í spreybrúsa.
- Vatni bætt úti og hrist vel saman.
28.05.2011 11:26
Kaffiskrúbbur fyrir hendur og fætur

Einfaldur skrúbbur
Innihald
- Kaffikorkur
- Smjörlíki
- Smjörlíki nuddað á hendurnar.
- Síðan þurrum kaffikork.
- Hendur nuddaðar vel og þvegið af.
Innihald:
- 2 msk þurrkaður kaffikorkur
- 2 msk kakó (má sleppa)
- 1 tsk soðið vatn
- 1 tsk rjómi eða mjólk
- 2 tsk olífuolía fyrir mjög þurrar hendur (má sleppa)
- Kaffikork, kakó og soðnu vatni blandað saman.
- Bætið rjóma eða mjólk útí.
- Síðan ólífuolíunni.
- Borið á hendur og fætur ef fólk vill.
- Nuddað vel inn í húðina með hringlaga hreyfingum.
- Skolað vel af.
28.05.2011 10:33
Blessuð sólin elskar allt- ilmandi sóláburðir

Sólarolía - vörn
Innihald:
- 10 dropar chamomile ilmkjarnaolía
- 10 dropar geranium ilmkjarnaolía
- 10 dropar lavender ilmkjarnaolía
- 5 ml jojobaolía
- 5 ml kvöldrósarolía
- 5 ml sesamolía
- 15 ml grunnolía
- Öllum olíunum blandað vel saman.
- Sett á flösku og borið á andlit og líkama áður farið er út.
Innihald:
- 1 dropi bergamot ilmkjarnaolía
- 2 dropar geranium ilmkjarnaolía
- 5 dropar chamomile ilmkjarnaolia
- 10 dropar lavender ilmkjarnaolía
- 30 ml sesamolía
- 60 ml möndluolía
- Öllum olíunum blandað saman.
- Sett á flösku og borið á eftir sólböð.
Innihald:
- 1 dropi minta ilmkjarnaolía
- 3 dropar geranium ilmkjarnaolía
- 4 dropar chamomile ilmkjarnaolía
- 5 ml grunnolía
- Olíunum blandað saman.
- Sett út í baðvatn (1 skammtur)
Innihald:
- 4 dropar eucalyptus ilkjarnaolía
- 4 dropar lavender ilmkjarnaolía
- 250 ml kalt vatn
- Vatnið sett á spreybrúsa
- ilmkjarnaolíunum bætt út.
- Hrist vel saman.
- Spreyjað á andlit og líkama eftir þörfum.
Innihald:
- 6 dropar lavender ilmkjarnaolía
- 6 dropar eucalyptus ilmkjarnaolía
- 50 ml nornahesill (witch haxel)
- 200 ml vatn
- Vatni og nornahesil blandað saman.
- Ilmkjarnaolíum bætt úti.
- Hristið vel saman.
- Spreyjað á andlit og líkama eftir þörfum.
Innihald:
- 10 dropar lavender ilmkjarnaolía
- 5 ml eplaedik
- 200 ml aloe vera
- 2-3 hylki e-vítamín
- Eplaediki og aloe vera blandað saman.
- Lavender og e- vítamíni bætt útí.
- Hrist vel saman.
Innihald:
- 20 dropar lavender ilmkjarnaolía
- 5 ml gunnolía
- 20 ml aloe vera
- Lavender blandað saman við grunnolíuna.
- Olíunum blandað saman við aloe vera.
- Sett á flösku og borið á líkamann við sólbruna.
14.05.2011 14:34
Túnfífill - Taraxacum officinale

Túnfífill - Taraxacum officinale er undursamlegt jurt og of vanmetin hér á landi en mér sýnist að það sé að vakna áhugi á honum og fólk farið að gera sér grein fyrir hversu mikil not er hægt að hafa af honum. Kannski fáir en stendur allt til bóta.
Túnfifillinn hefur í aldaraðið verið notaður í grasalækningum og í matagerð og jafnvel í snyrtivörur. Alla plöntuna má nýta; blöðin má nota út á salat, í síróp, drykki og vin, blöðin er hægt að nota í salöt og nota eins og spínat, rótin má þurrka og var hún notuð áður fyrr sem kaffibætir. Ég hef heyrt um að hægt sé að nota hana í expressókönnu. Þá er jurtin stungin upp, rótin hreinsuð og þurrkuð. Síðan skornin í bita og ristuð í ofni, bitarnir malaðir í kaffikvörn og gert kaffi úr í expressókönnu. Fyrir þá sem nota mjólk má svo gera latte úr drykknum.
Túffífill er þvagdrífandi, styrkir lifur, meltingarfæri, örvar hægðir og gallmyndun. Blöðin eru þvagdrífandi og innihalda mikið af kalíum. Þau eru mikið notuð við bjúg einkum ef hann orsakast af máttlausu hjarta. Rótin er notuð við lifrar- og gallblöðrusjúkdómum t.d, við gulu, við meltingartruflunum, svefnleysi og þunglyndi. Einnig góð við bjúg sem orsakast af vanvirkri lifur og til að styrkja líkamann eftir langvarandi áfengisneyslu eða mikla lyfjatöku.
Fíflavín
Innihald:
- 5 lítrar vatn
- 2 bollar sykur
- 2 lúkur fíflahausar.
- Sett í krkku og látið standa við stofuhita í 5-7 daga.
- Hrærið í öðru hvoru.
- Síið og setjið á flöskur.
- Geymið á köldum stað.
Fíflasíróp
Innihald:
- 250 gr fíflahausar.
- 2 appelsínur
- 1 1/2 lítir vatn
- ca 500 gr sykur
- Safi úr einni sítrónu.
- Atamon (má sleppa)
Aðferð:
- Hausarnir og appelsínurnar skolaðar vel.
- Appelsínurnar skornar í bita, sett í pott ásamt hausunum og látið malla í vatninu í ca. 1 klst.
- Síið blómin og bitana frá.
- Sykri og sítrónusafa bætt út í og látið malla áfram í 1 klst.
- Látið kólna og setjið á krukkur sem skolaðar hafa verið upp úr atamon (má sleppa)
- Notað með ostum, ís og pönnukökum.
Salat
Innihald:
- 10-15 fíflablöð.
- 1 gúrka
- 1 dl súrmjólk eða ab mjólk
- 1 tsk púðursykur.
- safi úr einni sítrónu.
Aðferð:
- blöðin skoluð og skorin smátt.
- Gúrkan skorin í strimla.
- Súrmjólkinni hellt yfir ásam púðursykri og sítrónusafa.
Fíflahunang
Innihald:
- 400.stk fíflar (blómin)
- 2.sítrónur
- 1 lítri vatn
Aðferð:
- Þvo fíflana vel.
- Sítrónurnar skornar í bita.
- Sjóða í 3-4 mín í vatninu.
- Látið kólna í sólarhring. .
- Síðið og setjið 2 kíló af sykri saman við soðið.
- Sjóða saman i 1 klst.
- Sett á hreinar krukkur.
24.04.2011 19:31
Ilmkjarnaolíur við meltingartruflunum

Nú þegar páskarnir eru senn á enda gæti maginn verið í uppnámi hjá sumum eftir páskaeggjaát og misléttan mat. Þá er gott að eiga ilmkjarnaolíur og/eða te í skápnum og nota það. Piparmyntute og Kamillute róar magann. Eins gerir mintuilmkjarnaolía mikið gagn og einn dropi af mintu í sykurmola getur gert heilmikið gagn.
Fennel-, kamilla-, rósmarín,piparmintuilmkjarnaolía virkar vel á magaverki.
5 dropar imkjarnaolía í 5 ml grunnolíu nuddað yfir kviðinn.
21.04.2011 15:31
Gleðilega páska

Gleðilega páska kæru netverjar, njótið helgarinnar.
21.04.2011 12:23
Bænadagar

Bænadagar kallast dagurinn í dag og á morgun og laugardagurinn sem í hönd fer, þrír helgustu dagar ársins og allra daga, allra tíma. Það eru öðruvísi dagar, ólíkir öllum öðrum dögum.
Skírdagur
Skírdagur kallast svo vegna þess að á þeim degi sýndi Jesús fordæmi hinnar hljóðlátu, auðmjúku þjónustu kærleikans, er hann laut niður og þvoði fætur lærisveina sinna. Þannig tjáði þeim kærleika sinn og gaf þeim síðan til borðs með þeim, þeim sem áttu eftir að svíkja hann, afneita honum, sofna á verði, flýja af hólmi, og láta hann eftir einan, ofurseldan óvinum sínum. Hann rétti þeim brauðið og vínið:"Þetta er líkami minn, fyrir yður gefinn, þetta er blóð mitt fyrir yður úthellt til fyrirgefningar syndanna. Gerið þetta í mina minningu."
Föstudagurinn langi
Föstudagurinn sem komandi nótt elur af skauti sínu, nóttin, sem hann svikinn var, kallast föstudagurinn langi. Sá dagur var langur, þó byrgði sólin auglit sitt á hádegi og myrkur lagðist yfir landið. Hann var langur, því það var sem tíminn stæði kyrr, stundirnar frysu í sporunum, þegar lausnari heimsins háði sitt dauðastríðHann sem bar synd heimsins var kvalinn, deyddur og lagður í gröf.
Laugardagurinn fyrir páska
Svo kemur laugardagurinn fyrir páska, hvíldardagurinn mikli, eins og hann kallaðist í eina tíð; Dagurinn er Jesús hvíldi í gröf sinni og sorgin var yfir og allt um kring; dagurinn þegar lífið heldur í sér andanum í ofvæni andspænis því sem er með öllu óhugsandi: dauða Guðs. Og svo þegar nýr dagur rís, hinn fyrsti dagur nýrrar viku, og ársólin varpar geislum sínum yfir landið, þá leiðir hún í ljós opna gröf, steininum var velt frá, hinn krossfesti er upprisinn!
Í þeirri sögu sem rifjuð er upp um bænadaga dymbilviku er það sem til forna var nefnt "axis mundi," möndull heims. Allt sem er og var frá öndverðu og allt sem verða mun um eilífð, hið mikla, stóra, og hið smáa, ómælisvíddir alheims og innstu hjartans inni, allt er á undursamlegan hátt ofið inn í það sem þarna gerist. Um þetta snýst veröldin, þessa fórn, þennan kærleika, þessi heilögu spor, þetta líf, Jesú sem kom til að þjóna og gefa líf sitt. Í honum sem var kominn til að þjóna, sem braut brauðið í loftsalnum á skírdagskvöld og engdist síðan í trúarglímu grasgarðsins, í honum sem hrópaði í dauðans angist og einsemd á krossinum, í honum er alfa og ómega, upphafið og endirinn.
Bænadagarnir minna á að lífinu var hafnað, hatrið og dauðinn hafði sigur, lífið dó. Dveljum við þá höfnun, ósigur og dauða og hugleiðum hann, við sem vitum það eitt um ókomin skref og ókomnar stundir að þær færa okkur nær eigin dauðastund. Horfum inn í þetta rökkur loftsalarins og Getsemane og myrkur Golgata og grafarinnar. Vegna þess að sérhvert mannslíf sér hér sína sögu sagða. Í þessum dauða, sem sumir myndu nefna tilgangslausan, má sjá tilgang alls lífs og eilífa ákvörðun. Í skuggsjá krossins sjáum við hver við erum vegna þess að þar er hann sem er sá sem okkur er ætlað að vera. Við sjáum það í birtu páskanna, upprisu hins krossfesta, að kærleikurinn sigrar, lífið sigrar. Guð blessi okkur öllum þá von og trú í frelsarans Jesú nafni.
Höfundur sr. Karl Sigurbjörnsson biskup, tekið af www.tru.is
http://tru.is/pistlar/2011/04/baenadagar/
18.04.2011 12:10
Ótta, rismál, dagmál...

Á meðan Ísland var bændasamfélag var sólarhringnum er skipt í fjóra hluta:
- morgun
- dag
- aftann
- nótt
Eykt merki þrjár stundir en var einnig notað um tímann milli 15:30 og 16:30. Rót orðsins hefur sennilega merkt 'dráttardýr' og upphafleg merking orðsins var 'tíminn sem dráttardýr er spennt fyrir plóg, vagn'.
Eyktirnar eru þessar:
- 03.00 ótta
- 06:00 rismál/miður morgunn
- 09:00 dagmál
- 12:00 miðdegi/hádegi
- 15:00 nón
- 18:00 miður aftan/miðaftann
- 21:00 náttmál
- 24:00 miðnætti/lágnætti
Orðið dagur er talið vera skylt orðum sem merkja 'hiti, eldur, brenna'. Aftann er líklega skylt 'af' og 'aftur' en einnig getur verið að það sé samsett úr orðum sem merkja 'eftir' og 'dagsverk' og merki því 'tímann að loknu dagsverki'. Um ættartengsl orðsins nótt segir Ásgeir Blöndal að lítið sé vitað.
Orðið eykt er skylt orðinu eykur 'dráttardýr, burðardýr'. Sama orð er til í öðrum Norðurlandamálum. Í norsku er það øk 'gamall og lélegur hestur', í nýnorsku øyk 'hestur, í dönsku øg 'gamall, slitinn hestur' og í sænsku ök 'hestur'. Rótin er því samnorræn og gömul og hefur líklegast merkt 'dráttardýr' því að í finnsku er til tökuorðið yógya í sömu merkingu og er gamalt í málinu. Í finnsku hafa varðveist mörg ævagömul norræn orð sem oft styðja ágiskanir um uppruna norrænna orða.
Merking orðsins eykt er 'þrjár stundir' en orðið er einnig notað um tímann milli 15.30 og 16.30. Í norsku er til orðið økt í merkingunni 'vinnutími milli tveggja hléa', í nýnorsku øykt í sömu merkingu. Upphafleg merking er þá 'tíminn sem dráttardýr er spennt fyrir plóg, vagn'.
Af sömu orðsift er nafnorðið ok 'klafi á dráttardýrum'.
Rót orðanna er án efa gömul því að í sanskrít, hinu forna máli Indverja, er til orðið yógyah sem merkir 'dráttardýr'. Ef það er borið saman við finnska orðið yógya má sjá að þau eru nánast eins og augljóslega af sama uppruna.
Heimild: Vísindavefurinn
05.03.2011 13:05
Kryddaður líkamsskrúbbur

Skrúbbur
Innihald:
- 240 gr púðursykur
- 240 gr hvítur sykur
- 180 gr olía
- 10 gr kanill
- 10 engifer
- 10 múskat
- 40 dropar ilmkjarnaolia eftir smekk (má sleppa)
- Sykri og kryddi hrært saman.
- Olíu og ilmkjarnaolíu blandað saman.
- Hrært samn við sykurin.
- Farið í sturtu, nuddið skrúbbnum á og þvoið síðan vel af.
Hægt að minnka eða stækka uppskrifina eftir þörfum og skipta út kryddi eftir smekk.
05.03.2011 12:36
Ilmandi lavender í baðið

Lavender saltskrúbbur
Innihald:
- 150 gr salt
- 100 gr þurrkað lavender
- 375 ml olía
- 25 dropar lavender ilmkjarnaolía
- Salti og lavender blandað saman.
- Olíu og ilmkjarnaoliu blandað saman og sett saman við saltið.
- Sett á krukku.
- Borið á líkamann í sturtu og þvegið af.
Lavender baðsalt.
Innihald:
- 120 gr matarsódi
- 240 gr salt
- 240 gr þurrkað lavender
- 20 dropar lavender ilmkjarnaolía
- salti, matarsóda og lavender hrært saman.
- Ilmkjarnaolíunni blandað varlega samn við og hrært vel út.
- Sett á krukku, sett út í rennandi baðvatn.
03.03.2011 19:34
Morgunfrúarkrem

Morgunfrúarkrem (andlitskrem)
Innihald:
- 30 ml morgunfrúarolía (calendula)
- 5-7 gr bývax
- 6 dropar german chamomile ilmkjarnaolía
- 4 dropar lavender ilmkjarnaolía
- Olían og bývaxið brætt saman.
- Tekið af hitanum og ilmkjarnaolíunum bætt út í.
- Sett á krukku.
Mjög einfalt og þægilegt krem að útbúa, má skipta út ilmkjarnaoliunum eftir smekk og sleppa bývaxinu eða breyta magninu eftir þörfum.
