Seiðkonur, grasaguddur og allt það lið

Nafn:

Seiðkona

Tenglar

24.02.2007 23:14

Krydd, ennin yfir í óin


Negull - Syzygiu aromaticum

Negull er óútsprunginn blómahnappur af negultrénu og er hann handtýndur. BLómahnapparnir eru síðan sólþurrkaðir. Best er að kaupa hann heilann.
Í Evrópu er hann mest notaður í bakstur, sætindi og eftirrétti, en í Kína hefur hann verið notaður meðal annasrs í fimmkryddblönduna. Hann er algengur á Indlandi og Srí Lanka og er notaður í kjöt og hrísgrjónarétti í arabalöndum. Íbúar Indónesíu nota um það bil helming af öllum þeim negul sem er ræktaður en þó ekki í matargerð, heldur eru vindlar kryddaðir með negul og því má segja að þeir reyki negul. Fyrir daga tannlækna var negull notaður við tannpínu og var hann lagður við skemmdu tönnina.

Njóli - Rumex tongifolius
Er af mörgum álitinn illgresi en notkun hans var algeng til matargerðar og vel þekkt lækningajurt.Sem lækningajurt er hann barkandi, styrkjandi, hægðaaukandi, blóðhreinsandi, varnar rotnun, þvagaukandi, róandi. Góður við niðurgangi, gulu, harðlífi, lifrabólgu, vatnssýki, kláða, útbrotum, skyrbjúgi, holdsveiki og heimakomu. Af seyði nýrra blaða drekkist 1 bolli 3svar á dag. Með þvi er gott að þvo allskonar útbrot. Það er líka gott í stólpípur. Af smáskornum rótum, einn hnefa í lítra af vatni, má gera seyði, sem hreinsar blóð og eykur þvag og hægðri.
Í matargerð má nota hann í salöt eða í súpur og grauta og í jafninga, er hann þá notaður svipað og grænkál eða spínat

Ólífur - Olea europaea/Olive
Ólífur eru algengar í matarmenningu við Miðjarðarhafið og Rómönsku-Ameríku, en íbúar evrópu og Norður-Ameríku hafa verið duglegir að tileinka sér notkun ólífna og eru þær notaðar í alöt eða sem forréttur

Ólífuolía er algjörlega ómissandi í alla matargerð en hún er unnin úr ólífum og getur verið töluverður bragðmundur eftir því frá hvaða landi hún kemur og hún er flokkuð eftir sýrumagni.
Jómfrúarolía/Virgin olive oil inniheldur 1-3% sýru og er úr fystu pressu eða svo kallaðri kaldri pressun.
Extra virgin olive oil er hágæða olía fengin úr fyrstu pressun og inniheldur 1% sýru
Fino olive oil er blanda af extra virgin-oil og virgin-oil
Pure olive oil er sambland af hreinsaðri ólífuolíu og virgin-olíu

Ólífuolía er mikið notuð í miðjarðarhafsmataræði sem þó nokkur gaumur hefur verið gefinn að síðustu árin en þar mun vera minna um hjartasjúkdóma en á vesturlöndum og er hún talin eiga þátt í því ásamt mikilli fisk-, grænmetis -og ávaxtaneyðslu

24.02.2007 19:44

Krydd: emmin með smá útúrdúr



Majoran/Meiran - Origanum majorana/Sweet marjoram og Órigano - Origanum vulgare

Eru tvær náskyldar og mjög keimlíkar tegundur, majoran er þó braðgmildari. Hún er góð í salöt, með kjöti og fiski, eggjakökur, tómatréttum, súpum, sósum og heita ostarétti. Hún missir þó bragð við suðu og er best að setja hana útí í lok suðunnar.
Majoran táknar trúnað og kærleika og á að færa fólki hamingju og frið og bæði grikkir og rjómverjar gerðu brúðarkransa úr henni.

Órigan - Origanum vulgare/Oregano
Er mikið notað í ítalskri matargerð s.s. pizzur, pasta og tómatrétti eins fer það mjög vel með mozzarellaosti. Hægt er að rækta það innandyra í blómapottum.

Malurt - Artemisia absinthium
Er lítið notuð í matreiðslu en þessu meira í áfenga drykki, hún er þó einnig notum sem náttúrlyf og hefur verið notuð við tíðaverkjum, lifra- og blöðrukvillum.



Mjaðurt - Filipendula ulmaria
Er lítið notuð í matargerð en þó eitthvað við sultur, hlaup og í ölgerð. Hún er þekkt lækningajurt og er sögð vera barkandi, svitadrífandi, uppleysandi, styrkjandi, græðandi, kælandi. Góð við niðurgangi, blóðlátum öllum hjá körlum og konum, í mergrunasótt og við sárum, í nýrnaveiki, blöðrubólku. Af tei blaðanna má drekka 1 bolla 3svar á dag.

Mynta - Mentha spp
Er þekkt krydd- og lækningrjurt frá örófi alda. Fjölmargar tegundir flokkast undir myntuna en í Evrópu eru einkum tvær tegundir sem hafa verið ræktaðar sem kryddjurtir: mynta (Mentha x piperita) og hrokkinmynta (Mentha spicata). Hún er mikið notuð í sætindagerð, en bretar og grikkir hafa einna mest notað hana í matargerð.
Myntu er auðvelt að rækta í garðinum og er góð tejurt, gott að tína hana á haustin og þurrka og eiga í te yfir veturinn.

Múskat - Myristica fragrans/nutmeg
Talið er að múskat hafi borist til Evrópu á 12.öld og varð snemma mjög vinsælt en einnig mjög dýrt krydd sem takmarkaði notkun þess, á tímabili einokuðu Hollendingar heimsmarkaðinn og heldu verðinu uppi en á 18.öld smygluðu frakkar fræjum og múskatstrjám frá yfirráðasvæðum Hollendinga og náðu að rækta það og brjóta einokun Hollendinga á bak.
Múskat er notað í ostasósur, soufflé, eggjarétti, hvítan jafning, kartöflumús og einnig í pylsu- og farsgerð. Það er einnig notað í kökur og sæta rétti
                                                                     

23.02.2007 23:16

Krydd, ellin ómissandi í maatargerð



Lárviðarlauf - Laurus nobilis/Bay leaf
Laufin eru notuð þurrkuð, heil eða möluð, fersk eru blöðin fremur bitur á braðgið en eftir nokkra daga geymslu hverfur það og þurrkuð blöðin halda bragðinu vel. Úr blöðum og berjum er unnin olía sem er notuð mikið í jurtalyf. Kryddið hentar nánast í alla rétti, hvort sem það er fiskur, kjöt eða grænmetisréttir og eins er hægt að nota það í súpur.
Lárviður hefur löngum verið tákn fyrir visku og hafa skáld og fræðimenn verið krýndir lárviðarkransi og halda bretar enn í lárviðarskáld



Laukur - Allium/Onions
Er ómissandi í nánast alla matargerð og er eitt af því sem verður að vera til í hverju eldhúsi. Laukur hefur löngum verið talinn hafa lækningamátt og er talinn vera góður við háum blóðþrýstingi örva nýrnastarfsemi.
Til er aragrúi af lauktegunum og þyrfti eiginlega heila síðu í að útlista þeim ef vel á að fara, en í grófum dráttum má skipta þeim í fjóra meginflokka;hnattlauka, geirlauka, graslauka og græna lauka


Hnattlaukar - Allium cepa
Til hans teljast Gulur laukur, sá sem við köllum almennt lauk.
Bermúdalaukur sem er líkur ítölskum lauk en minni og notaur á svipaðann hátt.
Hjálmlaukur sem er frekar bragðdaugur en notaður í piklun.
Ítalskur laukur, þekktist hér á landi sem rauður laukur og er góður í sósur og salöt.
Silfurlaukur, lítill á stærð við valhnetu og er góður í pottrétti og rjómasósur
Skalotlaukur hefur milt og sætt bragð.
Spánskur laukur sem mjög líkur gula lauknum en ljósari, góður í salöt og laukhringi.



Geirlaukur/Hvítlaukur - Alluim sativum/Garlic
Geirlaukur er annað íslensk orð yfir hvítlauk og er mun eldra en í dag þekkja flestir hvítlauksheitið betur. Geirlaukur er komið af forn-engilsaxneska orðini garleac sem merkir spjót eða geir og kemur orðið fram í Stutt ágrip úr Lachanologia eftir Eggert Ólafsson frá 1774, en þar segir hann að geirlaukur sé góður til að reka mýs úr húsum. Eins mun geirlauks vera getið í einni af Guðrúnarkviðum Eddukvæða



Graslaukar
A.schoenoprasum er algengur í íslenskum görðum og gengur undir nafninu graslaukur, einnig telst hnúðulaukur til graslauka

Grænir laukar
Þeim má skipta í tvo flokka blaðlauka og piparlauka
Púrrulaukur , A.Porrum er einna þekkstaður meðal blaðlauka
Vorlaukur er einna þekktastur meðal meðal pípulauka.

Lavender - Lavendula spica
Er velþekkt sem ilmjurt og er mest notuð sem slík, notkun þess í matargerð er ekki mikil en blöðin og blómin hafa þó verið notuð í súpur og pottrétti og einnig í salöt og jurtate.
Hún er notuð við þunglyndim taugaspennnu og streitu og olían var notuð til sótthreinsunnar.
Eins var algengt að nota hana í línskápa til að gefa góðan ilm

23.02.2007 22:10

Krydd, áfram með káin



Kúmen - Carum carvi/Caraway

Vex bæði villt og í görðum um allt Ísland og boðið hefur verið uppá tínsluferðir í Viðey á kúmeni ásamt leiðsögn. Kúmen hefur verið notað töluvert á Íslandi, fræin notuð í brauð, kökur, súpur, pottrétti, osta og við niðursuðu. Blöðin er hægt að nota í kálrétti, í salöt og pækil, eins var það líka notað í kaffi, þá var kúmeninu blandað saman við kaffið áður en hellt var uppá. Kúmen örvar meltinguna, er vindeyðandi og eykur brjóstamjólk, er gott gegn gulu og lifrabólgu.
Kúmeni og Broddkúmeni (Cuminum cyminum) er oft ruglað saman og þó svo að þau séu lík í útliti og í raun fjarskyldar jurtir þá er bragðið ólíkt og hvorugt kemur í stað hins í matargerð.
Gísli Magnússon flutti kúmenjurtina til Íslands í kringum 1660 og snemma virðist öll jurtin hafa verið nýtt. Í Noregi hafa laufin verið nýtt í súpur og brauð, eins var kúmenolía sem unnin var úr aldin kúmens notað sem rotvarnarefni i brauð og osta og sem braðgefni við kryddun áfengis þar á meðal íslenska brennivínsins og ákavítis.

Kúmín/Broddkúmen - Cuminum cyminum/Cumin
Er eitt mest notaða krydd á Indlandi og er kryddið venjulega ristað eða steikt á pönnu, það er einnig notað í kryddblönduna "garam masala" og bengö0lsku fimmkryddblönduna "panch phoron" sem og er það yfirleitt notað í tandoori rétti

Kúrkúma - Curcuma domestica, curcuma longa
Er ómissandi litarefni í karrý og ýmsa indverska sæta rétti

22.02.2007 00:13

Krydd, káin og ekki öll komin


Kanill - Cinnamomum seylanicum/Cinnamon

Ceylon-kanill er hinn eiginlegi kanill og er þurrkaður innri börkur trjátegundarinnar Cinnamomum seylanicum.
Indónesíu-kanill C. burmannii er önnur tegun af sömu ætt sem er vipaður af gæðum og Ceylon-kanil.
Kassía og Saigon-kanill eru náskyldar tegundir en mun síðri að gæðum, sumstaðar er kassía seld sem kanill en það getur varðað við lög í sumum löndum enda um hrein vörusvik að ræða.
Kanill hefur verið notaður í aldaraðir og Forn-Egyptar notuðu hann vi ðsmurningu á múmíum, grikkir notuðu hann til að krydda vín og á meðal rómberja var hann einnig notaður við kryddun drykkja. Evrópubúar kynnstust honum síðan er krossfarar snéru heim upp úr aldamótunum 1100. Á miðöldum var kanill mikið notaður í Evrópu en hvarf svo um tíma úr matargerð Evrópubúa og er hann helst notaður í kökugerð og eftirrétti, auk þess til að krydda drykki, þar á meðal jólaglöggs.



Kapers - Capparis spinosa/Capers
Eru sólþurrkaðir blómahnappar runnans í ediklegi. Hann er notaður í franskri og ítalskri matargerð í sósur, með fiski og forréttum.


Kardimommur - Elettaria cardamomum/Cardamom
Kardimommur eru þurrkaðir fræbelgir og í fræbelgnum eru lítil dökkbrún fræ sem innihalda bragðið sem sóst er eftir en lítið bragð er af belgnum sjálfum.
Grasalæknar hafa notað kardimomur sem lyf gegn hægðarvandamálum og lystarleysi, eins er hægt að tyggja þær til að koma í veg fyrir andremmu.
Elettaria caramomum (Grænar kardimommur) eru algengustu kardimommurnar á markaðinum. Þær eru þrennskonar að lit; grænar, ljósgular og ljósar.
Amomum subulatum (Bengalkardimommur) eru svartar kardimommur og stærri en þær grænu og ekki jafn sætar og þær grænu. Til eru mörg afbrigði af svörum kardimommum. Kardimommur hafa ekki verið mikið notaðar í Evrópu nema þá á Norðurlöndunum og þá í bakstur, Inverjar og Arabar nota þær mikið í matargerð og í indverska kryddteinu Chai Masala eru yfirleitt kardimommur og kanill einig er það notað í kryddblönduna Garam masala

Karrí - Curry
Er kryddblanda sem á rætur sínar að rekja til Indverskra matargerðar en þær blöndur sem tíðkast á Vesturlöndum eru lagaðar að íbúm Vesturlanda og eiga lítið skylt við indversk karrí.
Algengustu krydd í karrí eru engifer, kóriander, svartur pipar, kúmín og túrmerik
Tailensk karrí er síðan frábrugðið indversku karrí þó svo að það innihaldioft sömu krydd en hjá þeim má svo finna galangal sítrónugras og stjörnuanís.

Karsi - Lepidium sativum/Garden cress
Orðið karsi er notaður yfir fjölda jurtategunda sem flestar eru af krossblómaætt.
Lepidium sativum (Garðaperla) er algengastur hér á landi. Auðvelt er að rækta hana með því að sá fræjunum í grunnan bakka á raka bómull, bréfþurrku eða mold, hún er svo tilbúin til notkunnar eftir 5-7 daga. Þá má setja bakkann í kæliskáp eða á svalan stað til að hægja á vextinum. Karsinn er góður í fersk salöt, súpur , sósur einnig er hægt að nota hann í eggja- og grænmetisrétti og sem álegg ofan á brauð.



Kóríander - Coriandrum sativum/Coriander
Er talið vera eitt af fyrstu kryddum sem maðurin tileinkaði sér í matargerð og var vel þekkt meðal Forn-Egypta og rómverja, einnig var það ræktað á Norðurlöndunum á tímum víkinganna. Í Evrópu er eru kóríanderfræ notuð í basktur, súpur, sósur, eftirrétti og drykk. Egyptar nota kóríanderfræ í kryddblöndu sem er kölluð dukka, sem getur verið mjög mismunandi eftir innihaldsefnum. Kóríander hefur ekki verið mikið notaður við lækningar en er þó talinn örva matarlys, bæta meltinu og virka vökvalosandi fyrir líkamann
.

20.02.2007 22:49

Draumahúsið

~smíðað í bók~

Allir eiga sér draumahús og hafa hugmyndir um hvernig þeir vilja hafa hlutina í kringum sig. Ef til stendur að láta drauminn rætast og eignst húsið eða smíða það, er tilvalið að safna saman í úrklippubók hugmyndum að húsinu.

Þegar að flett er í gegnum tímarit, bæklinga eða blöð er ráð að klippa það út og setja í bókina. Einnig er hægt að punkta niður hugmyndir um leið og þar koma í hugann eða líma inn litaspjöld.

Aftast í bókinni er svo hægt að safna símanúmerum hjá góðum iðnaðarmönnum sem þú myndir vilja fá í verkið.

                                

20.02.2007 21:12

Hamingja




Fjórir meginþættir hamingju eru

  • Sjálfsvirðing
  • Bjartsýni
  • Hreinskilni
  • Sjálfsstjórn

Aðferðir/ráð til að verða hamingjusamur eintaklingur
  • leiktu hlutverkið
  • hreyfðu þig
  • vertu skilulögð/skipulagður
  • brostu
  • réttu úr þér
  • hláturinn lengir lífið
  • hlustaðu á tónlist
  • vertu með hamingjusömu fólki
  • gleymdu þér
  • veldu rólegt umhverfi
  • víkkaðu út sjóndeildarhringinn
  • kveiktu á kertum
 

17.02.2007 21:34

Rauð súpa af fingrum fram

Rauð súpa full af græmeti og lauk sem kemur sér vel í flensutíma.

Hráefni:

  • Ólífuolía.
  • 1 rauðlaukur, smátt saxaður.
  • 1 laukur, smáttsaxaður. 
  • 2 shallottulaukar, smátt saxaður.
  • 3 hvítlauksrif, marin.
  • 2 rófur, skorin í bita.
  • 4 rauðar kartöflur, skornar í bita.
  • 1 stór kartafla, skorin í bita.
  • 4 gulrætur, skornar í sneiðar.
  • 2 dl rauðar linsur.
  • 1 rauð papríka, smátt skorin.
  • Vatn eftir þörfum,.
  • Hvítur piparþ
  • Herbs de Provence frá Pottagöldrum

Aðferð:

  • Grænmeti og laukur skorið smátt og léttsteikt á pönnu.
  • Kryddað með hvítum pipar og Herbs de Provence kryddblöndunni. Sett í pott og suðan látin koma upp.
  • Látið malla áfram við vægan hita góða stund.

                                       [The Whomper]

17.02.2007 14:50

Krydd og stjörnumerkin

                

Þessa punkta fann ég í Gestgjafanum og ákvað að setja þá inn til gamans. Kryddin fyrir Hrútinn henta mér að vísu vel,líka þau sem eiga ekki að henta mér en síðan er ég það mikill kryddfíkill að ég finn mig í öllum stjörnumerkjunum.

  • Hrútur: kanel, karrí, basilíka,en síður vanilla, negul og minta
  • Naut: Kanel, negullm minta og steinselja en síður karí og engifer.
  • Tvíburi: vanilla, basílika, minta og hvítlaukur en síður kanel, engifer og karrí.
  • Ljón: negul, múskat og steinselja en síður hvítlaukur
  • Meyja: vanilla, steinselja og minta en síður kanel ,karrí, hvítlauk og basilíka
  • Vog: negul, engifer, vanilla og minta en síður basilíka ogmúskat.
  • Spordreki: kanel,engifer, karrí, hvítlauk og basílíu en síður negul,vanillu, mintu og steinselju.
  • Bogmaður: negull, hvítlauk og karrí en síður múskat, kanel og mintu
  • Steingeit: negul, múiskat og stenselju en síður kanel, engifer,basilíku og mintu
  • Vatsberi: hvítlauk, engifer og steinselju en síður kanel, engifer basilíku og mintu
  • Fiskur: vanilla, múskat, negul og mintu en síður karrí og basilíka.

10.02.2007 20:39

Tómat- og papríkusúpa



Tómata- og papríkusúpa


Hráefni:
  • Tómatar 6-8 stykki
  • 1-2 papríka, skorin í bita.
  • 1 laukur, smátt saxaður.
  • 1 rauðlaukur, smátt saxaður.
  • 1 shallottulaukur, smátt saxaður.
  • 4 hvítlauksrif, kramim.
  • 6 kartöflur, skornar í sneiðar.
  • Tómatpúre.
  • Tómatsósa með basil og hvítlauk frá Hunts.
  • Rjómi.
  • ólífuolía.
  • Grænmetiskraftur.

Aðferð:

  • Laukur, kartöflur og paprika Léttsteikt á pönnu.
  • Smáttskornum tómötum bætt út í,
  • kryddað með Herbs de Provence.
  • Látið malla í nokkrar mínútur,
  • Kremjið tómata svo þeir verði maukkenndir
  • Sett í pott  bætið tómatpúre, tómatsósu og grænmetiskrafti út,
  • Látið suðuna koma upp.
  • Látið malla við vægan hita í góða stund.
  • Bætið rjóma útí rétt áður en súpan er borin fram.

06.02.2007 21:07

Hreinsun fyrir líkama og sál í skammdeginu

Þessir punktar koma frá Jurtaapótekinu og eru tilvaldir núna á nýju ári þegar að fólk vill taka til í lífi sínu og heilsumálum og er orðið þungt á líkama og sál í vetrardrunganum.


Jurtavörur frá Jurtaapótekinu

Stuttungamjöður:
Jurtablanda sem að hefur afeitunaráhrif í líkamanum. Gott ef fólk er að taka mataræðið í gegn og er á einhverjum hreinsikúr. Mjólkurþistill sem styrkir lifrafrumurnar. Króklappi sem örvar lifur í að framleiða meira gall og þannig örvar alla hareinsun í líkamanum. Brenninetla sem er mjög næringarmikil og talin blóðhreinsandi. Klóelfting sem er vökvalosandi og hjálpar nýrunum að hreinsa. Caynne pipar sem að örvar blóðflæðið og spirulina sem er blóðhreinsansi og inniheldur mjög mikið af næringarefnum. Spirulina inniheldur 18 ammínósýrur þar á meaðal þessar 8 nauðsynlegu. Mikið Beta carotenn. E-vítamín, joð, járn og B-12 vítamín. 100 g af plöntuninni inniheldur 50-70% prótein. Spirulina hentar vel þegar fólk er að taka sig í gegn og er á hreinsikúrum.

Vaðgelmir:
Hér eru velvaldar jurtir til að ryksuga ristilinn. þetta er hugsað til að nota í 2-3 mánuði, þetta er ekki eitthvað sem gerist mjög fljótt, það fer ekki að sjást hvað þetta gerir fyrr en eftir 4 vikur. Í þessu er leir og þari sem dregur úr eiturefni úr risli, husk sem ryksugar rstil, sítrónubörkur og rauðrófur innihalda góðrar trefjar sem að hreinsa ristilinn og góð andoxefni. Regnálmur og Læknastokksrós eru mjög græðandi fyrir slímhúð í rislli og draga einnig út óhreinindi. Króklappa örvar gallframleiðslu á lifur og þannig örvar hreinsun og að lokum er smá Negull í þessu til að drepa ef það er eitthvað óslkilegt lifandi íristlinum. Á meðan er verið að taka þessa blöndu þá er gott að neyta ekki mjólkurvara.

Þarabað:
Þari í bað gefur húðinni mikið af steinefnum sem fara í gegnnum húðina. Hann inniheldur einnig mikið af slímefnum sem eru mjög góð í að mýkja húðina. Hann er líka hreinsandi fyrir sogæðakerfið með því að draga í ú t í vatnið eiturefni. Þar af leiðandi er hann góður fyrir appelsínuhúð, jafnar líkamsefnafræðina, losar spennu og gerir húðina mjðg fallega. Gott að gera þetta x1 í viku reglulega en má gera 2-3 sinnum fyrstu tvær vikurnar. Best er að vera í baðinu í ca. 30 mínútur og hafa baðið vel heitt og bæta svo heitu vatni út í eftir þörfum.

Mataræði:
Forðast: Mjólkurvörur, skyr osta ofl.
Nota: Hrísmjólk, sojomjólk og möndlumjólk

Forðast: Hvítan sykur, asparame, maltodextrin, sorbitol og önnur sætuefni.
Nota: Hrátt hunang, ávexti, agave síróp, hlynsíróp, ferska grænmetis- og ávaxtasafa.

Forðast: Hvítt hveiti, hvítt pasta, hvít hrísgrjón.
Nota: Heil korn, hýðishrísgrjón, heilt bygg, hirsi, bókhveiti, quinoa, mais, hafra, amaranth og rúg.

Forðast: Gos, sódavatn, kaffi, svart te og kakó.
Nota: Jurtate, fíflarrótarkaffi, grænt te, vatn, ferska ávaxta- og grænmetissafa.

Forðast: Olíur sem er búið að hita fyrir ofan 100°C, allt viðbit og olíur í plastbrúsum í verslunum.
Nota: Íslenskt smjör án salts, olífuolíu, hörfræsolíu, sólblómaolíu, hampolíu, sesamolíu kaldpressaðar og lífrænar.

Forðast: Unnar kjötvörur, unnin fisk og svínakjöt.
Nota: Hreint kjöt, nema nautakjöt í lágmarki, hreinan fisk, baunir, fræ, hnetur, tófú og egg, en þó lítið af þeim.

Forðast: Ís, kökur, sætt kex og sælgæti
Nota: Ferska og þurrkaða ávexti, speltkex án sykurs, hrískökur, heimagerðar kökur án sykurs og mjólkur.

Forðast: Salt með aukaefnum.
Nota: Sjávarsalt, maldon salt, jurtasalt og sesamsalt.

Forðast: Edik.
Nota: Eplaedki, súrsunarmysu.

Nota mikið af hráum ávöxtum og grænmeti, því í þeim er mikið af lifandi ensímum sem hjálpa líkamanum að vinna úr fæðunni. Eins er gott að búa til spírur, en í þeim er mikið af ensímum og góðum próteinum.

Þurrburstun:
Best er að vera með bursta úr nátturulegum hárum og með góðu skafti til að ná vel að bursta bakið.
Aðferð; burstið með mjúkum bursta fyrst þangað til húðin er farin að venjast burstuninni. Byrjið á iljum og burstið með kraftmiklum hringhreyfingumn og nuddið allan líkamann í átt að hjartanu.

Burstið húðina í þessari röð:
  1. Fætur og fótleggi.
  2. Hendur og handleggi.
  3. Bak.
  4. Kviðarhol.
  5. Brjóst.
  6. Háls.
Burstið þar til húðin fer að roðna og verur heit í ca, 5-20 mínútur.
Best að gera á morgnana þegar að farið er á fætur eða á kvöldin áður en laggst er til svefns.

29.01.2007 21:12

Ljúffeng tómatsúpa fyrir nautnaseggi


Hráefni:

  • 8 tómatar, skornir í bita. 
  • 2 laukar, smáttskorið.
  • 6 hvítlauksrif, smáttskorið. 
  • 1 papríka, smáttskorið. 
  • Rjómi.
  • Rrauðvín.
  • Hvítur pipar.
  • Grænmetiskraftur.

Aðferð:

  • Laukur og hvítlaukur éttsteikt í ólífuol
  • Papríku og tómötum bætt útí.
  • Lryddað með pipar.
  • Látið malla þar til allt er orðið mjúkt.
  • Sett í pott ásamt vatni og grænmetiskrafti og látið sjóða.
  • Lækkið hitan og látið malla,
  • Skvettu af rauðvíni og rjóma bætt úti.
  • Kryddað eftir smekk ef þurfa þykir.

28.01.2007 23:28

Vangaveltur um drauma



Í aldaraðir hafa menn velt draumum fyrir sér, hvað eru draumar? Eru þeir merkingalaust bull eða eru þeir marktækir. Fyrstu draumskýrendur trúðu því að í gengum drauma gætum við náð sambandi við guðina og leitað eftir leiðsögn. Svo gott sem í öllum menningarsamfélögum eru til heimildir um drauma og tilraunir til að túlka þá og vangaveltur um hvernig eigi að túlka þá.

Babýlónímenn, egyptar og gyðingar til forna skráðu niður tákn og reyndu að ráða í þau. Í bíblíunni er mikið um drauma og túlkanir þeirra og í íslendigasögunum finnum við margar frásagnir um drauma og túlkanir þeirra. Gyðingar eru taldir vera fyrstir til að taka mið af vökulífi manna við ráðningu drauma þ.e. horft er til persónuleika viðkomandi, sem og atvinnu og fjölskyldur.

Meðal grikkja þá höfðu Aristóles, Plató og Sókrates allir áhuga á draumum og hlutverki drauma. Aristóles áleit að draumar væru birtingarmynd af vökulífi fólks, Plató taldi að draumar gætu haft áhrif á hvernig fólk hagaði lífi sínu. Þarna eru menn farnir að draga úr vægi guðanna og hins yfirnátturlega varðandi drauma.

http://en.wikipedia.org/wiki/Aristole
http:
//en.wikipedia.org/wiki/Plato
http://en,wikipedia.org/wiki/Socrates

150 e.k kom út ritið Oneirocritica eftir Artemisdorus frá Daldis sem er fyrsta uppfléttirit um draumaráðningar. Þar setur hann fram þá hugmynd að uppspretta drauma sé að finna í vökulífinu og því þurfi að taka mið af dreymandanum sjálfum, persónuleika, heilsufari, þjóðfélagstöðu við ráðningu drauma

http://en.wikipedia.org/wiki/Oneirocritica
http://en.wikipedia.org/wiki/Artemidorus

Á vesturlöndum voru Sigmund Freud (1856-1936) og Carl Gustav Jung (1815-1961) brautryðjendur í rannsóknum á draumum. Kenningar þeirra leggja grundvöll af öllum draumagreiningaraðferðum samtímans.

Sigmund Freud 1856-1939
Í riti sínu Die Traumdeutung/Draumtúlkun gerði hann grein fyrir draumarannsóknum fyrri aldar og hann fjallaði einnig um þær spurningar sem vakna í tenglsum við draumagreiningu. Hann áleit að nauðsynlegt væri fyrir sálgreindendur að skilja drauma sjúklinga sinna, því þeir hefðu mótandi áhrif á þá meðferð sem beita skyldi og að draumarnir hefðu áhrif á huga og sálarlíf fólks. Hann taldi að á meðan við svæfum væri hugurinn upptekinn við frumstæðar eðlishvatir og að langanir dreymandans og ómeðvitaður ótti væri yfirfærður í draumatákn. Í vökunni bælir vitundir slíkar kenndir og tákn niður.
http://en.wikipedia.org/wiki/Sigmund_Freud

Carl Gustav Jung 1815-1961
Vann um hríð með Freud en fljótlega skildur leiðir þeirra vegna ósamkomulagst um aðferðir og ólíka túlkun. C.G.Jung var að mörgu leyti sammála Freud um að draumar væru aðalega táknmyndir undirmeðvitundar dreymandans. En aftur á móti þá setti hann spurningarmerki við það að draumar væru eingöngu afleiðing af einstaklingsbundinni reynslu.
Hann hafði mikinn áhuga á goðsögum, trúarbragðafræði og mannfræði. Hann áleit tengsl vera á milli draumatákna og goðsagna og þjóðsagna sem runnar væru að sameiginlegum, sögulegum og menningarlegum rótum mannkyns. Jung þróaði þá kenningu að til væri "sammannleg undirmeðvitund" meðfæddur upplýsingabanki sem maðurinn sækti í til að hugsa og skipa niður hlutunum á ákveðinn hátt, óháð því í hvaða menningarsamfélagi fæddist í eða hvaða trúarbrögð þeir aðhylltust.
Hann setti einnig fram kenningu um "erkitýpu"eða arftýpur/fornmyndir sem væru eðlislæg, meðfædd hugmynd eða mynstur sem birtist í draumum manna sem stök mynd eða tákn.
Jung áleit að fólk gæti notað drauma til leiðsagnar og þroska í lífinu.
http://en.wikipedia.org/wiki/Carl_Jung

28.01.2007 01:45

Kryddjurtir í matseldina

  • Basilíkum er gott á pizzur í tómatrétti,heimatilbúnar tómatsósur, spagettirétti, með ljósu kjöti og alifuglum.
  • Dill er gott með fiski, skelfisk, lambakjöti, kartöflum, í sósur, kryddedik og kryddolíur
  • Fáfnisgras (Estragon) notað í fiskirétti, eggjarétti, kryddlög og kryddsmjör, kjúkling og kálfakjöt auk bernaise sósu
  • Fennika er notuð í súpur og fiskirétti. Fræin eru góð í te og hægt að nota þau í fiski- og svínakjötsrétti.
  • Graslaukur er góður i salöt, sósur, brauð, eggja- og grænmetisrétti og súpur.
  • Karsi (Garðperla) er notað sem álegg á brauð, í sósur og eggjakökur.
  • Koriander er gott í karrírétti, sósur og salöt. Fræin eru notuð í súrsað grænmeti, pylsur.
  • Meriam notast í grænmetisrétti, tómatrétti, á pizzur.
  • Minta er notuð í lambakjötsrétti, sósur, drykki og hlaup. Hrokkinmynta notast í te en piparminta er mest notuð í sælgæti og líkjöra.
  • Oregano er góð með steiktum fiski, tómatréttum og pizzum.
  • Rósmarín er góð með lamba-, svína- og fuglakjöti og einnig á villibráð.
  • Salvía er góð með svína-, kálfa og lambakjöti.
  • Steinselja er notuð í kryddvendi við suðu á fiski, kjöti og grænmeti og einnig í kryddlegi og salöt.
  • Timjan hentar vel með svína-, nauta- og kálfakjöti. Notað í potrétti og súpur.

21.01.2007 00:08

Kjúklingasúpa með meiru


Hráefni:

  • Afgangar af kjúkling
  • 1 gulrófa sneidd niður
  • 6-8 kartöflur sneiddar niður
  • Nokkrar gulrætur sneiddar niður
  • Nokkur hvítlauksrif
  • Laukur
  • Blaðlaukur
  • Rjómi
  • 2 grænmetisteningar
  • Krydd eftir smekk, en mæli með hvítlauk, hvítum pipar og arabísku kjúklingakryddi á kjúklinginn.

Aðferð:

  • Allt léttsteikt á pönnu upp úr olífuolíu.
  • Kjúklingurinn kryddaður með kjúklingakryddi, hvítlauk og hvítum pipar.
  • Látið malla í góða stund í potti, ásamt hæfilegum skammti af vatni. Rjómanum bætt við undir lokin.      

 

Flettingar í dag: 136
Gestir í dag: 17
Flettingar í gær: 705
Gestir í gær: 155
Samtals flettingar: 528062
Samtals gestir: 132253
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 05:15:03

Eldra efni