03.06.2007 20:47
Draumatákn - litir

Gulur er huglægur litur og tengist gáfnafari og hæfileikanum til að hugsa skýrt og rökfast. Hann er einnig tákn sólarinnar og er bjartur og hlýr litur og tengist kærleik, velvilja, góðmennsku og innsæi. Hann er einnig trúarlegur litur og stendur fyrir endurfæðingu. Hjá búddistum tengist hann auðmýkt, afneitun og nægjusemi.
Neikvæða hliðin er tengd hugleysi og hjá sumum öfundsýki.
Rauður er ástríða, orka. lífskrafur og er frumkrafturinn, tákn fyrir frumþarfir mannsins og lægstu hvatir. Hann tengist spennu, hraða og kynlífi og einnig getur hann táknað aðvörun þar sem tengist oft reiði og árásargirni. En hann tengist líka trúarbrögðum, hjá Mayaindíánum táknaði hann sigur og velgengi, hjá kínverjum er hann fyrir gleði og hamingju, hjá Indverjum tengist hann visku.
Í jákvæðasta skilning tengist hann sköpunarkraft og lífsgleði og hæfileika til endurnýjunar.
Grænn er litur þroska, gróanda, vaxtar og er heilandi litur.Hann er litur jafnvægis, vonar og gleði. Hann getur staðið fyrir það að líf þitt sé í jafnvægi og að þú takir góðum framförum, en neikvæða hliðin er svo tengt afbrýðissemi og öfund. Einnig getur hann tengst veikindum ef hann er gruggur eða dökkur.
Blár er huglægur litur tengdur rökhugsun og daglegri hugsun. Hann er traustur og ábyrgur litur. Tengdur réttlæti og sannleika. Neikvæða hliðin tengist kulda í samskiptum, að vera fjarlægður og setja veggi milli sín og umheimsins og jafnvel þunglyndi.
Svartur er vandmeðfarinn litur, hann tengist dauða og öllu því sem er dularfult eða á einhvern máta dulið. Hann getur staðið fyrir það sem við viljum fela eða því að við þörfnumst verndar gegn fólki og umheiminum, sem og þörf fyrir að draga sig í hlé. Hann tengist einnig sorg og mótlæti og það er ekki fyrir góðu að sjá svartklætt fólk í draumi.
Hvítur litur inniheldur alla liti og upphafið og endirinn. Hann er góður litur og táknrænn fyrir hreinleika og sakleysi og trú á það góða í fólki. Engu að síður getur hann þó líka tengst kulda og afneitun í samskiptum og staðið fyrir frostnar tilfinningar eða erfiðar aðstæður í lífi þínu.
Bleikur er oft en ekki alltaf tengdur rómantík og velgengi í ástarmálum og þá á það sérstaklega við ef hann er ljósrauður, fölbleikur litur er ekki góður og tengist alvarlegum veikindum og er óheillaboði.
Appelsínugulur er krafmikill litur og táknar gleði, hamingju og félagslyndi.
Hann getur verið ábending um að tími sé kominn til að víkka út sjóndeildarhringinn og umgangast fleira fólk.
Fjólublár litur er andlegur litur og tendur andlegum þroska en einngi getur hann tengst blekkingum og svikum, og því að horfast ekki í augu við raunveruleikann. Hann getur tengst misnotkun vímuefna og því að missa raunveruleikaskyn og lifa í heimi blekkinga. Hann hefur sterk tengs við trúarlega upplifum og mystík.
Brúnn er litur jarðar, lifs og dauða. Hann er traustur og trúverðugur litur og einnig er hann tengdur við ágóða. Hann getur táknað það að þú standir föstum fótum í tilverunni og hafir góða jarðtengingu.
03.06.2007 19:14
Draumatákn - hús
Hús í draumi stendur venjulegast fyrir dreymandann sjálfann, það er líkamsgerving dreymandans og bústaður sálar hans, stendur fyrir heilsufari og hvað er að gerast í lífi hans. Ástand þess hefur þá táknræna merkingu, eins hafa hvert herbergi fyrir sig sína merkingu.
Einnig getur hús táknað mismunandi áfangastaði í hugsun og athöfnum einstaklingsins. Ásigkomulag hússins segir til um ásigkomulag dreymandans og tengsl hans við annað fólk.
Gömul hrörleg hús eru fyrir því að viðhorf dreymandans eru orðin úrhelt.
Hús með mörgum fallegum herbergum ber vitni um aukinn vöxt og viðgang vitundarlífsins.
Myrkar vistaverur tákna neikvæð viðhorf, óvild og svartsýni, jafnvel þunglyndi.
Háaloft er táknrænt fyrir vonir dreymandans og háleit markmið en getur einnig sagt til um áð sem við höfum gleymt eða ýtt til hliðar og gefum ekki nægjanlega gaum að. Það tengist huganum og andlegu lífi og óreiða og drasl þar er ekki gott tákn og getur staðið fyrir hindranir í lífi okkar eða skort á markmiðum og skýrum huga.
Kjallari er fyrir því sem er okkur stundum falið og býr í undirmeðvitundinni, einnig því sem við viljum fela og ekki láta koma upp á yfirborðið. Heilsufarslega getur það tengst kynfærum og móðurlífi kvenna og sjúkdómum því samfara, einnig hefur baðherbergi líka með það svæði líkamans að gera hvað varðar heilsufar.
Gluggar eru táknrænir fyrir augu sálarinnar og það hvernig við horfum á umheiminn. Eru gluggarnir hreinir eða óhreinir, litlir eða stórir, er dregið fyrir þá eða ekki.
Gólf er grundvallaratriði lífs okkar og lífsreglur.Fúin gólf tákna að andlegur grundvöllur eða heimilislíf dreymandans er ekki traustur.
Sigið gólf er fyrir því að dreymandinn hefur fjarlægst hugsjónir sínar og markmið. Gólfið segir til um hversu traustar undirstöðurnar í lífi okkar eru.
Opnar dyr standa fyrir mismundandi þroskastig og um leið þörf fyrir að leggja rækt við andlega hæfileika
Baðherbergi getur tengst heilsufari og tilfinningum og þörf fyrir líkamlega, andlega og tilfinningalega hreinsun. Það getur tengt leyndamálum og jafnvel þörf fyrir að losa sig við ótta og vandræði og þvo þau burt. Einnig lausn undan úrheltum hugmyndum sem og þörf fyrir hvíld.
Eldhús er miðpunktur fjölskyldulífsins og segir til hvort eining ríkir innan fjölskyldunnar eða ekki. Autt eldhús stendur fyrir skort á innileika, enginn reiðubúinn til að tjá tilfinningar sínar. Sóðalegt og matarleifar er fyrir spennu, Notalegt eldhús og fullt af mat er fyrir velgengni og góðu heimilislífi.
Stofa er sá staður sem við bjóðum gestum að koma og er táknræn fyrir samskipti við aðra, sem og hvernig við viljum að aðrir sjái okkur.
Svefnherbergi er síðan einkalífið og það sem við berum ekki á borð fyrir hvern sem er. Það er einnig sá staður sem er okkur afdrep og öryggi
Stigar hafa ýmsa merkingu, annars vegar gera þeir þér kleyft að komast af einni hæð yfir á aðra og það getur verið táknrænt fyrir hvernig þú fer áfram í lífi, ferð af einu skeiði yfir á annað, úr einu verkefni í annað, hversu auðvelt eða erfitt þú átt með að skipta um hlutverk/verkefni, halda áfram í lífinu. Að fara upp stiga er fyrir góðu en að fara niður er gjarnan fyrir erfiðleikum og andstreymi.
03.06.2007 18:34
Draumatákn - fuglar og önnur dýr

Fuglar
Þar sem fuglar eru einu lífverunar sem geta flogið langar vegalengdir þá tengist það allt sem lyftir mannshuganum ofar efnishyggju, hverdagslífið, í hraða anadlegs lífs.
Góð tákn en fugl sem flýgur burt getur táknað vonbrigði.
- Dúfa: friðartákn
- Fálkinn: ekki misnota stöðu þína.
- Fönix: upprisa, endurfæðing.
- Gæs: heimskulegar athafnir
- Hani: steigurlæti, árásarhneigð.
- Hrafn: áminning umgæsku guðs og hvernig guð kann að bæta úr allri neyð. Sjálfsbjörg, vernartákn
- Hræfuglar: græðgi.
- Kjúklingur: sýna dirfsku, taka málin föstum tökum. Ekki ana út í e-ð hugsunarlaust.
- Páfugl: sjálfselska, hroki,dramb er falli næst.
- Svanur: feigð, fegurð, yndisþokki.
- Örn: er æðra sjálf.
Api:
Bjarndý
r:einstaklingar sem vilja brjóta aðra á bak. Sterkar skepnur sem vernda sitt svæði og sigrast á næstum því hverju sem er. Óhamið afl, stjórnsemi.
Býfluga:
sár og óþægileg reynsla
Dreki:
er e-r dreki sem þú þarft að bregðast við, táknrænir fyrir innri ótta, efnishyggja, bældar tilfinningar
Eðlur/kamelljón:
e-ð ljótt ásýndum sem er ekki endilega ræðilegt og eru að taka persónulegum umbreytingum. Mikilvæg andleg skilaboð.
Fíll:
völd, kraftur, stórir og áreiðanlegir vinir, þrautsegja og máttur. Dreymandi er staðráðinn í að ná árangri þrátt fyrir miklar hindranir.
Fiskur/fiskveiðar:
andlegur tilgangur lífsins, tilfinningar og tilfinningaástand.
Flugur:
gremja, slæm orka, afbrýðissemi og gremja, illur fyrirboði
Froskur/halakörtur:
Meiri háttar bareyting og ummyndanir. Er e-ð sem þu vilt breyta í persónuleika þínum eða útliti. Þörf fyrir að gera breyttingu á lífi eða hegðun. Tengjast einna helst því eða tánkar heilsubrest.
Hákarl:
duldar hættur, reiði, e-ð sem ógnar, afbrýððissemi
Hestur:
ofsafengnar tilfinningar, virkjun lífsorkunnar.
Hunangsfluga: lán
Hundur:
er góðs viti, vinir Tryggir vinir, skoða samband við vini.
Eðli/tilhneiging sem er ekki allaf hægt að treysta, árásargirni, eðlisávísun, hlýðni.
Höfrungar:
leiðbeinendur, boðberar, andlegir hæfileikar, vinsamlegir, kvíði, þörf fyrir örugga leiðsögn.
Höggormur:
freistingar, viska, svikráð
Hvalir:
andlegir eiginleikar, tákn fornra sanninda, skrásetjarar, móðuleg hlyja.
Kanínur:
frjósemi og tryggð í ástum, kvíði út af einhverju. Sjálfsfórn, velgengni.
Kind/lömb:
auðsveipni, staðlaðar skoðanir, löngun í að njóta hylli og viðurkenningar, gott gengi, leiðitamar.
Kónguló:
ganga í gildru, viðvörun, svartar og loðnar kóngulær eru ótti. Kóngulær sem klifra upp veggi eru fyrir að óskir rætast. Geta verið tákn um yfirþyrmandi konu sem hefur veitt þig í vef sinn.Ógn, hótun, varar v/hótun um að flækjast í net. E-r sem reynir að stjórna öðrum.
Krókódíll:
hættulegar hvatir, frumstæðar djúpuir ótti, gefa hættu til kynna. Dulin hætta sem leynist rétt undir yfirborðinu. Viðvörun um undirförla hegðun, fjandskapur.
Köttur:
sjálfstæði. Jákvæðir eiginleikar eða tákn um andstyggilega hegðun.
Kýr:
leti, værukær, velgengni og afrakstur
Leðurblökur:
gæfa, auðlegð, heilbrigði og langlífi, tengsl við myrkrarvöldin, hvað býr í myrkrinu.
Lirfur/maðkar:
eyðilegging, skemmdir: vanlíðan
Ljón:
átök, erfiðir skapsmunir, hugrekki, göfuglyndi og stolt. Hjálp við að yfirstíga efiðleika
Maðkar/Ormar:
orka jarðar, jarðtenging.
Mús:
smávægileg óþægindi, feimni, styggð, ótti við annað fólk.
Naut: þvermóska
Ófreskjur/skrímsli:
standa fyrir persónulegum púkum, tákna ástand sem þú býrð við s.s. einelti.
Refur:
lymska, brögðóttir einstaklingar.
Risaeðla:
djúpstæður yfirþyrmandi ótti
Rotta:
illkvitni, slúður, undirferli.
Skelfiskur:
sköpun, öryggi
Skjaldbaka:
langlífi, viðnámsþróttur
Snákar:
Kraftbirting mannlegrar orku, frjósemi og heilun. E-ð sem þú getur ekki treyst.
Svín:
sjálfelska, grægði, ofnautn
Tígrisdýr:
harka, hugrekki, göfuglyndi og stolt. Hjálp við að yfirstíga efiðleika
Úlfur:
Erfiðir tímar framundan, úlfur í sauðagæru.
Vespur:
ólán, óvinir, óþægilegar hindranir sem verður að sigrast á, aðvörun um hættulegt ástand.
30.05.2007 20:17
Dagur fimmtán og stuttur göngutúr

Ásgrímur Jónsson (1876-1958)
Telst til brautryðjanda í íslenskri myndlist og var sá fyrsti til að hafa myndlistina að aðalstarfi.
Hann var afkastamikill landslagsmálari og málaði bæði í olíu og vatnsliti, auk landslagsins sótti hann minni í íslensku þjóðsögurnar. Hann stundaði nám í Kaupmannahöfn eins og svo margir íslenskir myndlistarmenn gerðu á þessum tíma, þ.á.m.t. frændi hans Einar Jónsson. Ásgrímur gaf íslenska ríkinu verk sín og hús eftir sinn dag og er Ásgrímssafnið á Bergstaðarstræti 74 og er opið 1.6-31.8 frá 13:30-16:00 alla daga nema mánudaga.
http://www.listasafn.is/?expand=41-49&i=49
http://www.listasafn.is/?i=87&expand=41-49-87
http://www.listasafn.is/?i=88&expand=41-49-88
29.05.2007 21:25
Dagur 14 og brotist úr álögum
Að tveimur vikum liðinni lá leiðinn kringum tjörnina og hljóðaði prógrammið upp á 30 mínútur og gekk ég í hinu besta sumarverðri kringum tjörnina þar sem endur og álftir dormuðu í góða veðrinu ásamt styttum Einars Jónssonar (1874 - 1954)![]()
Einar Jonsson fæddist á Galtafelli í Hrunamannahreppi og þótti snemma óvenjulegt barn og afar listrænt. Hann hafði lifandi og myndríkt ímyndarafl og sköpunargáfu og sá margar kynjamyndir sem endurspegluðust seinna meir í listsköpun hans.
Foreldrar hans höfðu af honum miklar áhyggjur enda ólíklegt á þessum tíma að honum yrði fært að lifa af listsköpun en engu að síður þá fékk hann að fara til Reykjavíkur og hljóta þar kennslu í teikningu. Í Reykjavík á þessum tíma var ekki mikið um kennslu og lá leiðin til Kaupmannahafnar. Í fyrstu nam hann hjá Stephan Sinding myndhöggvara og síðan komst hann inn í Listaháskólann danska. Síðar ferðaðist hann til Þýskalands, Austurríkis og Ungverjalands og að síðustu til Rómarborgar og bjó þar um hríð.
Einar var afskaplega afkastamikill og eftir að hann kom heim reisti hann húsið Hnitbjörg sem hýsir safn hans í dag, en Einar sótti yrkisefni sitt í Norræna goðafræði, íslenskar þjóðsögur ásamt biblíuefnum
Hnitbjörg dregur að sjálfsögðu nafn sitt úr goðafræðinni en svo heitir fjallið þar sem Suttungur jötunn býr ásam Gunnlöðu dóttur sinni og geymir skáldamjöðinn. Einnig tengja margir nafnið Hnitbjörg við sagnir í ævintýri þar sem björg opnast og lokast af sjálfu sér og í þeim felast miklir fjársóðir, sem list Einars óneitanlega er.




28.05.2007 23:54
Dagur þréttán og Urðarsbrunnur
Þréttánda dag gékk ég í þessu fína sumarveðri um götur goðanna og ein af þeim götum heitir eftir norninni Urði.

Ask veit eg standa,
heitir Yggdrasill,
hár baðmur, ausinn
hvíta auri;
þaðan koma döggvar
þær er í dala falla,
stendur æ yfir grænn
Urðarbrunni.
Þaðan koma meyjar
margs vitandi
þrjár úr þeim sæ,
er und þolli stendur;
Urð hétu eina,
aðra Verðandi,
skáru á skíði,
Skuld ina þriðju.
Þær lög lögðu,
þær líf kuru
alda börnum,
örlög seggja.
(Völuspá)
En nornir þessar þrjár Urður, Verðandi og Skuld eru örlaganornirnar í norrænu goðafræðinni. Nafn Urðar merkir "það sem orðið er" fortíðin. Verðandi "hin líðandi stund" eða nútíðin og Skuld, "það sem skal gerast" er norn framtíðar. Þær ákveða aldur og örlög manna. Nornirnar geta líka séð framtíðina. Þær hafa spáð fyrir um ragnarök, það er hvernig og hvenær heimurinn mun farast. Þær búa við brunn þann er Urðarbrunnur heitir og stendur við eina af þrem rótum Asks Yggdrasils í Ásgarði. Örlaganornirnar vökva Askinn með hvítri leðju til að viðhalda lífskrafti hans.
27.05.2007 19:33
Dagur tólf og Hvítasunnan
Hvítasunnan er einn af þremur helstu atburðum kirkjuársins og þann dag er minnst að heilagur andi kom yfir lærisveinana og hvítasunnan er stofndagur kristinnar kirkju.
En sú trú tengist einnig þessum degi að á honum sofi ýmsar forynjur frameftir og auðveldara sé því að ráða niðurlögum þeirra.
Á þessum degi fæddist Racel Carson (1907-1964) en hún var bandarískur líffræðingur sem skrifaði þá merku bók "Raddir vorsins þagna/Silent Spring" og vakti með henni skilning fólks á umhverfisverns og nauðsyn þess að ganga vel um náttúruna. En á þeim tíma var notkun eiturefna við úðun garða algengt sem átti svo eftir að koma í ljós að drápu fuglalíf í stórum stíl og ríkjandi var sami hugsunarháttur sem var rkjandi hér og er að sumu leyti enn "að lengi tekur sjórinn við".
Hún er talinn einn helsti frumkvöðull að umhverfisstefnu og að við verðum að umgangast náttúruna af virðingu.

http://www.time.com/time/time100/scientist/profile/carson.html
26.05.2007 00:20
Kvefið og engifer

Engiferblanda:
Hráefni:
- 2 l vatn
- ca. 8 cm engiferrót
- 1 sítróna.
Aðferð:
- Engiferrótin er afhýdd og skorin niður í þunnar sneiðar, sett í pott ásamt 2 lítrum af vatni.
- Sítrónubörkurinn rifin ofan í og allt látið sjóða á lágum hita í u.þ.b klukkutíma.
- Potturinn þá tekin af hitanum og látinn standa yfir nótt.
- Sítrónusafinn er kreistur úr sítrónunni yfir að morgni og svo seiðið sigtað.
- Sett í 2 lítra flösku og geymt í kæli. Blandað til helminga við vatn þegar það er drukkið.
- Drekkist eftir þörfum yfir daginn.
25.05.2007 23:19
Dagur ellefu og enn er gengið
Í dag hljóðaði prógrammið upp á 20 mínútur og eftir góða göngu er gott að elda heita máltíð.
Past með tómötum og chili
Hráefni:
10 tómatar
1 chili
2 laukar
2-4 hvítlauksrif
2 msk ólífuolía
1-2 dl rjómi
rifinn parmesanostur
salt og pipar
spagetti
Aðferð: Tómatarnir skornir og maukaðir í matvinnsluvel, laukurinn saxaður og léttsteiktur í olífuolíunni. Tómötunum bætt út í, ásamt chilíinu, saltað og piprað eftir smekk. Soðið í 15 mínúturm rjómanum bætt útí. Chilíið tekuð úr sósunni þegar að hún er orðin tilbúin,
Spagettið soðið og borið fram með sósunni, parmesanosti og hrásalati
24.05.2007 21:41
Harry Potter and the Deathly Hallow

Þetta er kápan á síðustu Harry Potter bókinni "Harry Potter and the Deathly Hallow" sem kemur út 21.júlí í sumar og væntanlega kemur hún líka til landsins, jafnvel þó svo að ekki hafi tekist samningar við Eimskip um að flytja hana til landsins.
Bókakápan fyrir Bloomsbury útgáfuna í Bretlandi er gerð af Jason Cockroft

Bandaríska útgáfan er gerð af Mary Grandpre.
24.05.2007 20:33
Dagur tíu og viðureign Sæmundar fróða við kölska
En Sæmundur fróði var manna lærðastur á sínum tíma og nam við Svartaskóla sem mönnum ber ekki saman hvort hafi verið í Þýskalandi eða París. Svartiskóli ku hafa verið rekinn af kölksa sjálfum enda námu menn galdra við þann skóla. Engir kennarar voru sjáanlegir, en allt sem nemendur þurftu að vita, lá fyrir þeim í bókum eða var skrifað á vegg.
Menn dvöldu í þrjú ár við skólann og máttu ekki stíga út fyrir skólann á meðan á námi stóð. Að námi loknu yfirgáfu menn skólann í einfaldri röð og átti kölski sálu þess sem síðastur var út. Þegar að Sæmundur lauknámi var það hlutskipti hans að verða síðastu út, en hann náði að leika á kölska, ekki í fyrsta skipti og sleppa út frá honum.
Að námi loknu sótti hann um embætti prest við Odda á suðurlandi ásamt tveimur öðrum prestum. Kóngur ákvað að sá sem yrði fyrstur til lands myndi hljóta embættið. Að svo viknu gekk Sæmundur á fund Kölska og bauð honum sál sína í skiptum fyrir að kölski kæmi honum til Íslands á undan öðrum umsækjendum, með því skilyrði að hann yrðri að koma honum þurrum til landsins. Kölski gekk að boðinu og brá sér í líki sels og synti með Sæmund til Íslands. Er þeir nálguðust land, sló Sæmundur hann í höfuðið með Saltaranum og við það sökk selurinn og Sæmundur fór á bólakaf í sjóinn. Við þetta missti kölski af samningum, en Sæmundur synti í land og hreppti prestsembættið.
23.05.2007 22:04
Dagur níu og bjartsýnin
22.05.2007 21:54
His Dark Materials

Fyrir ellefu árum kom út The Golden Compass/Gylti áttavitin, fyrsta bókin af þremur í þríleiknum "His Dark Materials" eftir Philip Pullmann.
Hún hefur nú verið færð í búning á hvíta tjaldið og athyglisvert verður að sjá hvernig til hefur tekist.
Bækur þessar höfða til breiðs hóps lesenda og eru mjög vel skrifaðar sem á ekki alltaf við um fantasíur, en þó að ég hafi mjög gaman af fantasíum af ýmsum gerðurm, þá óneitanlega er afskaplega mikið af rusli gefið út á því sviði. Pullmann er í hópi betri höfunda á því sviði.
Bækurnar spanna yfir nokkra heima en í þeirri fyrstu kemur Lyra Belaqua/Lyra Silfurtunga 13 ára stúlka til sögunnar sem alin er upp í Oxford í Englandi. Hún lifir fremur áhyggjulausu lífi í háskólanum Jordan í byrjun sögunnar og besti vinur hennar er eldhúsdrengurinn Roger.
Breytingar verða á því þegar að hann hverfur einn daginn og hún leggur upp í mikla för á norðurbóginn í leit af honum. Bókinn er þroskasaga Lyru um leið og hún fjallar um baráttu góðs og ills og talið er að finna megi áhrif frá Paradísarheimts Miltons í bókum Pullmans.
22.05.2007 19:31
Og af öðrum hetjum
Sögurnar um Tinna ættu að vera flestöllum íslendingum velkunnugar, en höfundur þeirra Georgs Remi þekktari sem Hergé hefði orðið hundrað ára í dag. Hann fæddist 22.mai 1907 í Brussel. Og afsprengi hans Tinni kom til sögunnar 1929 í kaþólska blaðinu Le Petit Vingtiéme.
Tinni er blaðamaður að atvinnu og ævintýri hans gerast víða um heim, hann er fullur réttlætiskendar, vinur vina sinna og berst fyrir lítilmagnarann, en á tímum pólitískrar rétthugsunnar hefur oftar en ekki verið fétt fingur út í einhæfa og oft á stundum einstreigingslegrar persónusköpunnar.
Aðalsöguhetjurnar í bókunum eru:
Tinni/Tintin og eins og fyrr segir er hefur hann atvinnu sína af rannsóknarblaðamennsku og flettir oft er en ekki ofan af glæpamönnum af ýmsu tagi og oft er mjög auðvelt að sjá á illmannlegu útliti þeirra hver þrjóturinn er.
Tobbi/Milou hundur Tinna er tryggasti vinur hans og á milli þeirra er sterkt samband og skilja þeir hvor annan mjög vel.
Kolbeinn kafteinn/Capitaine Haddock birtist fyrst í Krabbanum með gylltu klærnar sem áfengissjúklingur og er mjög skapráður og auðvelt að hleypa honum upp. Með tímanum verður hann þó að einhverju leyti virðulegri eftir að verður húsráðandi að herragarðinum Myllusetri
Ein af fáu kvenpersónum bókana er Vaila Veinólína næturgalinn frá Mílanó sem verður yfir sig ástfangin af Kolbeini en sú ást er ekki endurgoldin
Prófessor Vilhjálmur Viðutan/Professeur Trypphon Tournesol er steríotýpa fyrir hinn viðutan prófessor og kemur til sögunnar í Fjársjóði Rögnvalds Rauða. Hann ef afar heyrnasljór og viðutan en afburða uppfinningarmaður og eignast heimili hjá Kolbeini á Myllusetri.
Tvíburarnir Skafti og Skapti /Dupont et Dupond eru leynilögreglumenn sem eru frekar seinheppnir og lítt starfi sínu vaxnir.
Æfintýri Tinna gerast víða, hann ferðast til flestra ef ekki allra heimsálfra og afrekar það að fara til tunglsins og í einn sögunni hefur hann viðkomu á Íslandi en það er í Dularfullu stjörnnunni.
- Tinni í Sovétríkjunum - (Tintin au pays des Soviets) (1929-1930)
- Tinni í Kongó - (Tintin au Congo) (1930-1931)
- Tinni í Ameríku - (Tintin en Amérique) (1931-1932)
- Vindlar Faraós - (Les Cigares du Pharaon) (1932-1934)
- Blái Lótusinn - (Le Lotus bleu) (1934-1935)
- Skurðgoðið með skarð í eyra - (L'Oreille cassée) (1935-1937)
- Svaðilför í Surtsey - (L'Ile noire) (1937-1938)
- Veldissproti Ottókars konungs - (Le Sceptre d'Ottokar) (1938-1939)
- Krabbinn með gylltu klærnar - (Le Crabe aux pinces d'or) (1940-1941)
- Dularfulla stjarnan - (L'Etoile mystérieuse) (1941-1942)
- Leyndardómur Einhyrningsins - (Le Secret de la Licorne) (1942-1943)
- Fjársjóður Rögnvalds rauða - (Le Trésor de Rackam le Rouge) (1943-1944)
- Sjö kraftmiklar kristallskúlur - (Les Sept boules de cristal) (1943-1948)
- Fangar sólarinnar - (Le Temple du soleil) (1946-1949)
- Svarta gullið- (Tintin au pays de l'or noir) (1948-1950)
- Eldflaugastöðin - (Objectif Lune) (1950-1953)
- Í myrkum mánafjöllum - (On a marché sur la Lune) (1950-1954)
- Leynivopnið - (L'Affaire Tournesol) (1954-1956)
- Kolafarmurinn - (Coke en stock) (1958)
- Tinni í Tíbet - (Tintin au Tibet) (1960)
- Vandræði Vaílu Veinólínó - (Les Bijoux de la Castafiore) (1963)
- Flugrás 714 til Sydney - (Vol 714 pour Sydney) (1968)
- Tinni og Pikkarónarnir - (Tintin et les Picaros) (1976)
- Tintin et l'Alph-Art - (hefur ekki enn verið þýdd) (1986) Ókláruð, gefin út að Hergé látnum.
Á netinu má finna ógrynni af síðum um Tinna og þar á meðal er þessi síða http://www.tintinologist.org/ en þar er umgjöllun um höfundinn og bækur hans og hinar ýmsu upplýsingar.
22.05.2007 18:25
Dagur átta og bragðarefurinn Loki

(Mynd af Fernisúlfinum er eftir Grím Kristinsson)
En burtséð frá vandræðum þeim sem hann olli ásum og öll hans velbrögð, þá eru börn hans með þeim skrautlegri sem um getur, en með gýgjunni Angurboða á hann þrjú börn, Fernisúlfinn, Miðgarðsorminn og Hel.
En er goðin komust að tilveru þessa þriggja systkina og þá spádóma sem þeim tengdust, ákváðu þau að losa sig við börnin.
Miðgarsðorminum köstuðu þau í djúpan sæ er umkringir heiminn og bítur þar í sporð sér.
Hel var kastað niður í Niflheim og hefur hún vald yfir níu heimum og ákveður hvar fólk dvelst er til hennar eru sendir, en það eru sóttdauðir menn og ellisdauðir. Hún á sér bústað þar og heitir salur hennar Éljúðnir, Hungur heitir diskur hennar, Sultur hnífur hennar, Ganglati er þræll hennar, Ganglöt ambátt, Fallandaforað er þröskuldur er inn er gengið, Kör er sæng, Blíkjandaböl ársali hennar.
Fenrisúlfurinn bundu æsir með fjötrinum Gleipni en í Ragnarrökum mun hann slíta sig lausan og gleypa Óðinn áður en Víðar nær að drepa hann
