Flokkur: Draumar og tákn
22.01.2011 12:06
Svíf ég inn í draumalandið

Svefnolía 1
Innihald:
- 50 dropar chamomile ilmkjarnaolía
- 50 dropar lavender ilmkjarnaolía
- 20 dropar majoram ilmkjarnaolía
- 20 dropar clary sage ilmkjarnalolía
- 20 dropar chamomile ilmkjarnaolía
- 30 dropar lavender ilmkjarnaolía
- 30 dropar clary sage ilmkjarnaolía
- Ilmkjarnaolíunum blandað saman.
- Sett á glas með dropa teljara.
- 30 dropar af blöndunni.
- 30 ml grunnolía.
- Borið á líkamann eftir heita sturtu eða bað fyrir svefn.
- 8 dropar af blöndunni.
- 80-100 ml vatn
- Sett á úðbrúsa.
- Svefnherbergið spreyjað með fyrir svefn.
- 6-8 dropar settir í ilmdreyfara.
- 2-3 dropar settir í bómull og stungið undir koddann.
Skrifað af Seiðkona
03.01.2011 15:23
Draumatáknið koss

Draumatáknið koss getur verið svoítið flókið. Sumirl líta á það sem svo að þér sé sýnt fals ef þú ert kysst/ur í draumi. Aðrir telja það vera fyrir láni og umhyggju.
Sjálf er ég beggja blands með þetta tákn þar sem ég kannast við báðar merkingarnar. Ég held þó að það fari mikið eftir draumnum í heild sem og manneskjunni sem þú kyssir eða kyssir þig.
Ef ættingi eða eldir manneskja kyssir þig er það þér fyrir vernd og að einhver ber umhyggju fyrir þér. Kyssi ókunnug manneskja þig eða einhver sem þú þekkir lítið hygg ég að fólk ætti að hafa varann á sér.
Skrifað af Seiðkona
26.07.2009 12:33
Draumar og nátturuöflin

Elding:
Getur tengst hugmyndum og uppljómun, að finna laustn á verkefni/vandamáli. Ekki síst ef hún kemur á tíma þar sem þú ert að vinna að einhverju þá bendir hún til þess að þú finnir lausnir, ekki síst ef þú gegnur með opin huga til verks.
Elding hefur þó einnig eyðileggingarmátt og getur verið viðvörun að fara varlega og ana ekki fram úr sjálfum sér.
Eldfjall:
Draumar um eldfjöll og eldgos standa oft fyrir miklar breytinar í lífi dreymandans og koma fyrir í draumum þegar að fólk upplifir upplausn og/eða mikil átök. Þau geta einnig verið ábending til dreymandans að tími sé kominn til að gera róttækar breytingar á lifnaðarháttum sínum.
Eldfjall sem er við það að gjósa í draumi getur tengst ótta og áhyggjum viðkomandi af einhverju í lífi sínu, eða innri ólgu/reiði sem viðkomandi leyfir ekki að koma fram.
Jarðskjálfti:
Eins og eldfjallið getur hann tengst breytingum og þá oft það miklum breytinum sem dreymandinn upplifir að kippt sé undan honum fótunum. Hann getur táknað að undirstöður einkalífs dreymandans standi á ótraustum fótum og þær séu komnar að því að hrynja verði ekkert að gert. Hann getur því verið ábending til dreymandans að búa sig undir breytingar og vera viðkomin þeim, ein ef hann bregðist við í tíma sé hægt að sigrast á hlutunum.
Jarðskjálfti þarf þó ekki alltaf að vera neikvæður þó hann sé ógnvænleg upplifun. Hann má líta á sem viðbörun og að dreymandi geti bætt úr hlutunum.
Rigning:
Tengist yfirleitt tilfinningalegu ástandi dreymandans. Merking hennar fer eftir ýmsu og þá hvernig rigningin er. Mild rigning veit á gott og táknar að tilfinningalif dreymandans er í góðu jafnvægi. Steypirigning getur veirð fyrir því að dreymandinn sé að kikna undir álagi, sé í tilfinningalegu ójafnvægi.
Einnig getur rigningin verið hreinsandi og táknræn merking sú að tilfinningarnar þiðni ef fólk hefur gegnið í gegnum erfiða reynslu.
Stormur:
Er gjarnan fyrirboði ólgu innra með dreymandanum og í hans nánasta umhverfi og kemur gjarnan fyrir á erfiðum tímum. Hvort sem er í byrjun erfiðleika eða þá sem ábending að erfiðleikum fari senn að ljúka.
Hvassviðri í draumi er sem fyrr segir erfiðleikar og átök en komist dreymandi í skjól eða vindurinn bitnar ekki á honum, mun hann brátt sigrast á erfiðleikunum.
Þrumur:
Eru sjaldnast gott tákn og tengjast gjarnan áhyggjum og kvíða af einhverju sem þér finnst þú ekki ráða við. Getur verið táknræn fyrir eitthvað sem þú óttast. Þær geta einnig komið fram á tímabilum þegar þú vilt ekki takast á við eitthvað og reynir að stinga hausnum í sandinn.
Skrifað af Seiðkona
11.12.2007 21:21
Draumatákn - peningar

Peningar eru gjarnan jákvætt tákn í draumi og er fyrst og fremst orka. Margir tengja þá við tilfinningalífið en samhengið skiptir alltaf máli.
- Að taka við peningum er fyrir stuðningi.
- Að fá lánaða peninga er aðvörun um að fara hægt í sakirnar í fjármálum.
- Að ganga frá greiðslum er fyrir því að allar framkvæmdir gangi vel.
- Að finna pening er fyrir heppni.
17.07.2007 21:22
Kraftdýr, að finna dýrið sitt

Ég fann bráðskemmtilega síðu á netinu sem hjálpar við að finna power animal, ég veit satt að segja ekki hvernig er best að þýða það hugtak yfir á íslensku.
En það gengur út á að finna dýrið þitt sem í senn persónugerving fyrir þig og nokkurs konar fylgja, ásamt því að leiðbeina þér. Síðan er mjög aðgengileg, þú ferð inn í Töfraskóg þar sem þú hugleiðir á dýrið þitt og smellir svo á og þá birtist dýrið þitt.
http://www.poweranimalsunleashed.com/
Eydís sendi mér þessa fínu þýðingu á hugtakinu powerdýr, en kraftdýr sýnist mér vera góð þýðing yfir hugtakið. Og kann ég henni góðar þakkir fyrir ábendinguna.
18.06.2007 18:42
Draumatákn - persónur

Fólk sem kemur oft fyrir draumum sem tákn fyrir eitthvað í fari dreymandans, eða fyrir raunverulegt málefni sem þú stendur frammi fyrir.
- Blóðsuga er ógnun og að dreymandinn upplifir sig verskjaldaðann.
- Drottning er móðir, náttúra, réttlætiskennd, yfirvald, valdastaða
- Englar eru vernd og öryggi
- Faðir er vernd, öryggi
- Fangavörður er samviska, eitthvað sem þú þarft að segja frá.
- Gamalt fólk er viska, þroski.
- Hermenn eru hugrekki, ótti við að missa stjórn á tilfinningum sínum eða það að þú ert herskár einstaklingur.
- Hjúkrunarfræðingur er þörf fyrir umhyggju, hughreysting.
- Kóngur er valdastaða, yfirvald, foreldrar, föðurímynd.
- Læknar er þörf fyrir að létta á hjartanu, vandamál, sársauki.
- Lögregla er reglusemi, ákveðni, skipulag.
- Móðir er skortur á umönnun eða aukin þörf fyrir umhyggju.
- Norn getur staðið fyrir eitthvað sem hefur valdið dreymandanum vonbrigðum.
16.06.2007 21:43
Draumatákn - matur, jurtir og ávextir.

Matur og drykkur er yfirleitt jákvætt tákn, sérstaklega ef dreymandinn er saddur og ekki síst ef hann er í ánægjulegum félagskap. Þó getur óhóf í mat og drykk gefið til kynna þörf fyrir meiri tilfinningalega athygli. Skortur á mat og dreykk getur þýtt að deymandann skorti eitthvað í tilfinningalífinu.
- Brauð er hægt að túlka á ýmsan máta. Það getur tengst peningum og hæfileikanum til að sjá sér og sínum farborða. Kristin trú tengir það við að fá sitt daglega brauð, það er þörfin fyrir andlega næringu. Draumar um brauð geta staðið fyrir andlegum þroska dreymandans og hversu ánægður hann er með líf sitt.
- Egg er tákn fyrir upprisu, frjósemi og skapandi hæfileika.
- Eik stendur fyrir þolgæði og styrkleika í lífsins ólgusjó.
- Epli eru tengd við visku og auðsæld en einnig tengist það freistingum. Í kristni er epli í hendi Adams og Evu tengd synd og óhlýðni en í hendi Krists táknar það endurlausn.
- Fiskur er andlegt tákn og stendur fyrir lífsorkuna.
- Fjóla táknar auðmýkt.
- Korn/hveiti er fyrir frjósemi og vexti.
- Lilja táknar hreinleika og sakleysi.
- Mjólk er fyrir næringu eða að þig vanti næringu, líkamlega, tilfinningalega og andlega.
- Ostur er fyrir ágóða og árangri.
- Rós er tákn fyrirr sigur og ástina. Í kristni var rauð rós tákn píslarvættis en hvít hreinleika. Rós getur táknað trúnað og þagmælsku.
- Salt táknar hreinsun og vernd.
- Súkkulaði er fyrir ánægjulegum tíma en getur líka staðið fyrir óhóf og að þú þurfir að beita þig aðhaldi hvort sem er líkamlega eða andlega.
- Vín táknar frjálsan anda og bóhem.
14.06.2007 19:41
Draumatákn - skápar og aðrar hirslur

Skápur getur verið fyrir því að þú hafir eitthvað að fela. Hann getur líka verið fyrir því að þu horfist ekki í augu við vandamál þín. Hafi skápurinn verið fullur af mat eða fallegum hlutum er það gott tákn um framtíðina og það sem þú tekur þér fyrir hendur mun heppnast.
Tómur skápur er fyrir viðburðarlitlu lífi.
Fryst matvæli táknar kyrrstæðu, ásigkomulag andlegrar fæðu sem liggur fryst í fylgsnum sálarinnar.
Lyklar eru lausn að vandamálum.
Lyklar að hurð stendur fyrir því að að það er eitthvað sem þú þarft að breyta.
Lyklar að kommóðu eða skáp táknar að lausnin hefur e.t.v. verið bæld eða gleymd.
Fataskápur sem inniheldur föt er táknrænn fyrir innra sjálfið og lýsir perónulegri ímynd dreymandans sem hann sýnir út á við.
Læstur skápur þýðir að dreymandinn fyll fela eitthvað fyrir öðrum, vill ekki opna sig.
Fataskápur sem er yfirfullur af fötum bendir til eyðslusemi og tilhneigingu til að ýkja og gera mikið úr hlutunum.
Töskur og farangur tákna byrðar lífsins og þær tilfinningar sem dreymandinn ber með sér.
Tómar töskur er fyrir því að dreymandinn vill ekki að þrengt að sér.
Fatnaður í skápnum gefa til kynna hugsanir og viðhorf dreymandans
Skór/stígvel eru lífsgrundvöllur, andleg sjónarmið, vernd og öryggi. Sá grundvöllur sem dreymandinn stendur á. Hlutverk í lífinu eða sjálfsímynd smb. að fara í annarra skó.
Hattur það sem er að gerast í lífi dreymandans, hugsanavenjur hans eða að taka aðsér starf.
10.06.2007 17:39
Draumatákn - ferðalög og farartæki

Ferðalög í draumi tákna leið okkar í gegnum lífið og hvernig það ferðalag er segir til um líf okkar til skemmri og lengri tíma. Ferðalag þetta getur verið hvort sem er á tveim fótgangandi eða farartæki. Ferðalög geta líka verið ábending um breytingar framundan.
Biðstöðvar á leið okkar, á flugvöllum, umferðarmiðstöðvum o.s.frv. geta verið fyrir staði sem við stöldrum við á og gerum upp við okkur hvert skal haldið áfram.
Farangur er það sem vi ðberum með okkur i lífinu það sem dreymandinn veit og hefur reynt og sleppir ekki hendinni af. Byrðar líkamlega eða andlega.
Dýr í draumi tákna gjarnan stöðu dreymandans og hlutverk í lífinu og mikilvægt er að fylgjast með því hvaða dýr birtast okkur. Þau eru mjög mikilvæg draumatákn.
Til dæmis getur kónguló að spinna vef verið táknrænn fyrir tengslanet þitt og að þú sért skapandi einstaklingur eða þá að þú eigir að huga betur að samskiptum þínum og styrkja þau.
Fiskur hefur mikla andlega þýðingu og er táknrænn fyrir lífskraftinn sem er að koma inn í líf þitt og þú sért að taka andlegum , líkamlegum og tilfinningalegum breytingum og taka út þroska.
En ég ætla að fara betur í það seinna.
Aka bíl í draumi er táknrænt fyrir hvernig við förum í gegnum lífið og hvað er að gerast hjá okkur. Ertu við stjórn eða keyrir einvher annar bílinn. Voru hindranir á veginum, slys eða keyrðir þú áfallalaust.
Bátar, skip og brýr eru að sama skapi og önnur farartæki, bílar, strætisvagnar og hjól táknræn fyrir lífsferðina.
Þeir geta tengst því að víkka út sjóndeildarhringinn og breytingum. Hvernig sjóferðin gekk og hvernig var í sjóinn segir sína sögu. Slettur og lygn sjór er fyrir góðu, en ólgandi sjór er andstæðan og er fyrir erfiðleikum.
Fjöll í draumi koma oft á tímamótum í lífi dreymandans og gjarnan við aðstæður sem hafa djúp og varanleg áhrif á persónu fólks og líf þess.
Flugvélar tengjast oft meðvitaðri og ómeðvitaðri löngun dreymandans til að flýja núverandi aðstæður og eins að hefja sig yfir hverdaglegt dægurþras. Ef dreymandinn er við stjórnina táknar það að hann heldur um stjórnvölina í lífi sínu eða er að reyna að ná stjórn á lífi sínu.
Sé dreymandi um borð í vél sem flýgur í hringi táknar það ósjálfstæði og skort á markmiðum. Að dreyma sig í flugvél sem ekki lætur að stjórn er að sjálfsögðu slæmt tákn og bendir til þess að dreymandi sé ekki við stjórnvölina í lífi sínu.
Hérflugvelar/sprengiflugvélar eru slæmur fyrirboði og eru fyrir átökum, hindrunum og áhyggjum.
Að missa af ferð getur táknað það að þú missir af einhverju tækifæri í bókstaflegri merkingu eða að þér finnist þú vera missa af einhverju.
Að ganga upp þrep og stiga er táknrænt fyrir persónulegan vöxt. Að ganga niður stiga eða detta getur táknað áhyggjur og kvíða yfir því að klífa metorðastigann.
Vegir og ganga tákna að sama skapi og fyrri tákn vegferð okkar í lífinu og ástand vegarins og gönguferðin hvernig til tekst og hvað er í gangi.
Beinn og breiður vegur er fyrir velgengi og heppni og góðu lífi.
Þröngur og bugðóttur vegur fyrir hinu gagnstæða og að á lífi þínu eru og verða hindranir sem þú þarft að yfirstíga. Einnig getur hann táknað óvissu um hvaða stefnu þú átt að taka sem og krossgötur tákna líka, en að vísu með þær að þá stendur þú yfirleitt frammi fyrir einhverju vali.
10.06.2007 17:19
Draumatákn - athafnir

Athafnir/framkvæmdir í draumi er oft fyrir því að láta verkin tala í daglega lifinu og hvernig þú fótar þig í lífinu.
- Að detta er fyrir því að missa stjórn á aðstæðum.
Að elta eða vera eltur /flýja er fyrir innri togstreytu, áhyggjum eða eltast við eitthvað sem er að renna úr greipum þér
- Að fljúga er fyrir því að ú yfirstígur hindranir, tekst á við erfiðleika.
- Að hlaupa/flýja er fyrir því að þú vilt ekki horfst í augu við vandamál.
- Að klífa upp fjall er fyrir því að vandamálið virðist vera óyfirstíganlegt eða þá að þú gerir of mikið upp úr því. Getur líka táknað að þú sért undir miklu álagi.
- Að slást er fyrir andlegri togstreytu.
- Að stökkva er að flýja vandamál.
- Að stökkva yfir hlut eða hindrun er fyrir því að þú leysir vandamál/hindrun.
- Að ganga er fyrir lífsgöngunni og endurspeglar líf þitt og hvað er að gerast.
- Að ganga upp í mót er fyrir baráttu.
- Að ganga þröngan stíg er fyrir því að þú þarft að horfast í augu við eitthvað.
- Að ganga á opnu svæði er fyrir velgengni.
- Að gagna á dimmum og drungarlegum stað er fyrir erfiðleikum eða einhverju sem þú óttast.
10.06.2007 16:06
Draumatákn - atburðir og viðburðir í lífi okkar.
Brúðkaup er ný byrjun eða breyting á lífi þínu. Getur endurspeglað viðhorf þin til skuldbindingarDauði er breytingar, lok þýðinagarmikils skeiðs og endurfæðing í kjölfar þess. Ótti við breytingar, sársaukafull reynsla.
Fæðing er nýtt upphaf, góður fyrirboði.
Jarðaför getur komið fyrir í draumum okkar þegar að eitthvað tímabil/samband/atvinna hefur tekið enda og við höfum horfst í augu við það og sætt okkur við ástandið.
Að vera viðstaddur jarðaför einhvers sem þú þekkir og er á lífi, getur verið fyrir því að samband ykkar sé á enda eða að þú óskir að enda sambandið
Að jarðsetja einhvern getur táknað neikvæðar tilfinningar í hans garð.
Að vera sjálf jarðsett lifandi táknar að þú upplifir þig í aðstæðum/sambandi sem þér finnst þrengja að þér.
Gröf getur táknað það að við viljum skilja eitthvað að baki sem ekki hefur fullnægt okkur
Skilnaður er ótti, breytingar
10.06.2007 15:15
Draumatákn - egg og börn

Egg og börn eru tákn sem hafa oft líka merkingu í draumum, en í fornkirkjunni litu menn á eggið sem tákn upprisu. Eins og unginn sem lifir í egginu, brýst út úr því þegar að tíminn er komin þá munum við lifa og losna úr viðjum dauðans fyrir upprisu Krists.
Að finna egg, barn eða nýklakaðan unga eða einhver önnur tákn um fæðingu í draumi tákna að nýja möguleika í lífi dreymandans, en geta líka táknað þörf fyrir næringu og umhyggju og að þú sért undir miklu álagi.
Egg í hreiðri er gott tákn og ef fyrir farsæld ef þau eru óbrotin, brotin egg tákna vonbrigði eða að eitthvað mun ekki ganga upp. Þau geta líka verið fyrir ólettu.
Fæðing tengist nýjum hugmyndum, nýjum tækifærum, nýju tímabili í lífi þínu eða lausn á vandamáli.
Fuglar "fæðast" tvisvar sinnum, fyrst í egginu frá móður og síðan þegar þeir koma úr egginu, það táknar aukinn þroska dreymandans á andlega sviðinu.
Börn standa fyrir möguleika og óskir dreymandans um framtíðina og birtast í draumum þegar að einu skeiði er lokið og nýtt tekur við og þegar að við stöndum frammi fyrir nýjum verkefnum og nýju tímabili í lífi okkar. Ástand og heilsa barnsins segir síðan mikið til um hvernig tekst til.
08.06.2007 22:28
Draumatákn - líkaminn

Andlit hvernig dreymandinn kemur öðrum fyrir sjónir.
Eigið andlit getur verið fyrir því að þú þarft að íhuga hver þú ert og eins hvað andlit þú sýnir út á við.
Mörg andlit í draumi benda okkur á að íhuga hverjir skipta okkur máli í lífinu.
Ókunnugt andlit þýðir breytingar í lífi þínu.
Augu skilningur og viðhorf dreymandans til lífsins. Augu er spegill sálarinnar og ástand þeirra endurspeglar andlega líðan dreymandans.
Sljó augu eru fyrir áhyggjum, kvíða, tilfinningastíflum og skorti á samskiptum við annað fólk.
Augabrúnir tengjast stolti, heiðri og viðurkenningu úr óvæntri átt.
Augabrunir klipptar þýðir að dreymandi hefur áhyggjur af því hvað öðrum finnst um stöðu sína
Miklar augabrúnir boða frægð eða upphefð, eitthvað óvænt
Þunnar augabrúnir eru fyrir vonbrigðum í ástum eða viðskiptum.
Bak ef þú sérð aftan á aðra manneskju getur það táknað einangrun og að þér finnist þú vera skilin eftir.
Sjáir þú þitt eigið bak getur það verið fyrir því að eitthvað sé að baki, sé yfir staðið eða að þú sért að skilja við unglingsár/undómsár.
Blóð er tákn fyrir lífið sjálft, tengist hugmyndum um æskubrunn og kraft. Tengist ást, ástríðum og reiði.
Brjóst tákn um að yfir standi tímabil persónulegs vaxtar og þroska eða breytina. Einnig að dreymandinn sé að uppgötva eitthvað nýtt. Tími fyrir dreymandann að slíta sig lausan og standa á eigin fótum. Stór brjóst eru fyrir góðu tímabili, lítil brjóst eru fyrir erfiðleikum.
Eyru tengjast því hversu tilbúin þú ert að hlusta á aðra og þau geta verið ábending um að hlusta betur á annað fólk.
Fætur eru framfarir í vökulífi, það að álíta að eitthvað sé sjálfgefið í sambandi við undirstöðuna/jörðina.
Ganga hægt er óákveðni með stefnu í lífinu. Leið sú sem dreymandinn er á. Að vera á hálum ís, skilningur. Þvo fætur þýðir að þú átt að halda þér til hlés.
Hár innri styrkur og persónuþroski. Hugsanastarfsemi
Dregin á hárinu er fyrir því að þú getur ekki treyst vinum þínum.
Flókið hár er fyrir vandamáli.
Finna hár á óvenjulegum stöðum er fyrir velmegun.
Fletta hár er fyrir nýju vináttusambandi.
Gott ásigkomulag er dreymandanum í hag.
Greiða hár/bursta, þú finnur lausn á vandamáli.
Greiða annari manneskju er fyrir því að þú leitar til annara.
Klipping er fyrir velgengni og góðum árangri
Lýjulegt hár/ógreitt hár er fyrir skorti á geðrænu jafnvægi eða erfiðleikum framundan.
Lýsa hár er aðvörun um að vera ekki of hégómleg.
Skalli er fyrir því að þú þarft að leggja meiri rækt við hugsanir þínar.
Hárgreiðsla getur táknað atferli dreymandans.
Handleggir hlýja, umhyggja, þörf fyrir að vernda og vera verndaður.
Hendur athafnir. þvo hendur sínar er að skjóta sér undan ábyrgð
Hjarta er þörf fyrir skilyrðislausa ást, næringu, umhyggju og tilfinningalegt öryggi.
Höfuð tengist yfirvöldum og fólki sem hefur áhrif á líf þitt
Húð er táknrænt fyrir hvernig við sýnum okkur umheiminum og getur einnig táknað heilsufar. Slétt og lýtalaus húð er fyrir góðu heilsufari.
Húðvandamál geta staðið fyrir tilfinningaleg vandamál og eitthvað sem þú skammast þín fyrir eða eitthvað sem þú vilt ekki horfast í augu við.
Húðvandamál/ör geta staðið fyrir sárar minningar sem hafa sett sitt mark á dreymandans
Magi þörf fyrir öryggi.
Munnur: er sjálfstjáning og samskipti og einnig ótjáðar tilfinningar.
Nef getur verið fyrir því að treysta innsæinu.
Neglur: geta verið fyrir þörfinni að komast að því sem er undir yfirborðinu.
Nekt getur staðið fyrir þörf fyrir að sýna öðrum þinn innri mann/innsta kjarna. Nekt getur tengst því að vera öruggur með sjálfan sig, eða því að vera berskaldaður og skorta vernd og öryggi. Nekt getur líka tengst veikindum, sérstaklega ef þér er kalt eða líður illa. Hún getur líka táknað eitthvað sem þú skammast þín fyrir eða ert óörugg með.
Að sjá aðra nakta er fyrir því að þú ert reiðubúin að taka fólki eins og það er.
Að vera nakin getur táknað að þú hefur ekki áhyggur af áliti annar á þér.
Tennur er sjálfsvirðing dreymandans. þær eru hið talaða orð, hvöss orð, eðlilegur þroski samanber barnstennur detta úr og fullorðinstennur koma í staðinn. Að vera umtalaðaur, að vera á milli tannana á fólki.
Tennur tengjast líka því að geta varið sig geng öðrum og eins skorti á því að geta varist öðrum, í þeirri mekingu að bíta frá sér.
Bursta tennur er fyrir peningum.
Gervitennur eru fyrir falsi
Fast milli tanna er vandamál leysist
Lausar tennur vara þig að vera ekki of lausmáll
Missir tanna er ótti og áhyggjur
Tanndráttur er aðvörun um að flýta sér ekki of mikið.
Tennur sem detta úr er ábending um að gæta betur orða sinna.
07.06.2007 23:45
Draumatákn - tölur í örstuttu máli

- Núll er upphaf og endir og táknar fullkomið frelsi.
- Einn er sjálfstæði, egó, byrjun og stendur fyrir sigri.
- Tveir stendur bæði fyrir jafnvægi og andstæðum.
- Þrír er ímyndunarafl, sköpunargáfa, kraftur, sjálfskoðun. Táknar þríeinaðan guð, heilög tala í kristni, fortíð, nútíð og framtíð.
- Fjórir er stöðugleiki, jarðtengingu, efnisleg mál og erfiðis vinnu.
- Fimm er hvatvísi, áræðni, breytingar, tenging milli himins og jarðar.
- Sex er samvinna, jafnvægi, fullkomnun, sameining.
- Sjö er andleg fullkomnun, æðri vitund,
- Átta er árangur, völd, yfirvöld, innsæi
- Níu er endurfæðing, uppljómun, mikilvæg tala í norrænni goðafræði
- Tíu er styrkur og áræði
04.06.2007 23:42
Draumatákn - náttúran og landslag
Tré er lífið sjálft og vöxtur, mismunandi stig mannlífs og getur bæði staðið fyrir dreymandann sjálfann eða lífshlaup hans, eins getur það sagt til um heilsufar líkamlega jafn sem og andlega og tilveru viðkomandi og hvernig honum líður.
Þrátt fyrir jákvæða merkingu trés almennt þá gildir ekki alltaf það sama um skóg, stundum er hann álitinn vera standa fyrir einhverju ógnvænlegu en þarf þó alls ekki að gera það. Hann tengist dulvitund og sjálfsleit. Ógnin sem er talin stafa af honum getur tenst því að í honum geta leynst hættur og eitthvað sem er dulið og þú ert ekki nægjanlega meðvitaður um.
Fjall er fyrir því aðná sífelt lengra í andlegum þroska, staður þar sem þú nærð meiri skinling á hinni efnislegri veröld, sem og staður þar sem þú leitar og finnur sannleikann. Að öðlast skilning á einhverju viðfangsefni/vandamáli. En einnig getur það staðið fyrir hindranir á vegi þínum eða áfanga/hindrun sem þú þarft að sigrast á. Þá skiptir líka máli hvort þú varst að klifra upp fjallið eða niður eða hvort þú varst á fjalltoppinum. Eins hvort leiðin var erfið eða létt, sem og hvernig umhverfið allt var. Ef þú stendur við rætur fjallsins getur leiðin framundan verið yfirþyrmandi en ef þú ert á toppnum þá nærðu þú árangri.
Fjöll geta komið fyrir í draumum á tímamótum í lífi okkar og þegar að miklar breytingar eru framundan.
Tún er fyrir því að góðir tímar eru framundan , sérstaklega ef þau eru grösug og velútlítandi og táknar einnig að þú hefur meiri þörf fyrir frelsi.
Garður er ytra umhverfi og viðhorf til umhverfis, táknrænn fyir stefnu í lífinu og tengsl við annað fólk. Garður hefur líka þá merkingu "að rækta garðinn sinn" og segir þá til um hvernig við ræktum okkur sjálf, líf okkar og samskipti við annað fólk og segir þá ástand garðsins og þess sem í honum er til um það. þessar báðar merkingar eru þó ekki andstæðar og oft er ekki gott að sjá hvort á frekar við eins getur bæði átt við. Gróskulegur garður og velhirtur er að sjálfsögðu gott tákn, girðing getur táknað múra/hindranir á milli okkar annara og hvort þú hleypir fólki og lífinu að þér eða ekki, hún getur staðið fyrir sjálfskipuðum hindrunum og vonbrigðum. Girðingar eru engu síðar nauðsynlegar svo ekki komist hver sem er inn í þitt allra innsta. Hlið segir svo líka til um samband þitt við aðra.
Sjórinn er eins og vatn almennt táknrænt fyrir tilfinningar og undirmeðvitun og það sem er okkur stundum dulið.
Draumar um að fólk fari í vatn eða blotni getur verið fyrir veikindum eða mótlæti.
Tært og lyngt vatn getur verið táknrænt fyrir hamingju og velgengni á meðan úfið haf er fyrir óstöðugleika í lífi þínu, ósætti eða leiðindum.
Vegur er táknrænn fyrir vegferð okkar í lífinu sem og hvað er að gerast hér og nú í lífi okkar. Ástand vegarins segir sína sögu, er hann sléttur og feldur og gengur ferðin vel, eða er hann holóttur og lendir þú í vandræðum. Eru hindranir á vegi þínum, tekur vegurinn óvænta stefnum, sérðu ekki hvað er fyrir handan hornið. Er rigning, þoka eða sól. Gengur þér ferðin vel eða gengur hún seint og illa. Allt þetta skiptir máli við túlkun.
- 1
- 2
Flettingar í dag: 135
Gestir í dag: 16
Flettingar í gær: 705
Gestir í gær: 155
Samtals flettingar: 528061
Samtals gestir: 132252
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 04:53:09
